- Í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Hverjum ætlað
Námskeiðið er ætlað foreldrum 12-18 ára barna og unglinga sem eru í grunn- og framhaldsskóla og eru með Aspergersheilkenni eða svipaða
röskun á einhverfurófi. Gert er ráð fyrir að þeir sem sækja þetta námskeið hafi lokið grunnnámskeiði.
Markmið
Að efla þekkingu á sérstökum þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir. Áhersla verður á
þátttöku og færni við ýmis viðfangsefni sem tengjast þátttöku í námi og félagslegum samskiptum, sjálfsmynd og
kynheilbrigði. Ennfremur á viðurkenndar leiðir í kennslu og þjálfun félagsfærni hjá þessum nemendum. Að þátttakendur
verði betur í stakk búnir til að mæta þörfum barna og unglinga á markvissan hátt með því að nýta
einstaklingsáætlanir, félagsleg þjónustuúrræði og þverfaglegt samstarf. Að skapa vettvang fyrir foreldra og aðstandendur sem
fást við sambærileg verkefni.
Efni
Fjallað verður stuttlega um einhverfurófið og hvað er líkt og ólíkt með Aspergersheilkenni og einhverfu. Ennfremur um félagslega færni
og skilning, einstaklingsáætlanir, yfirfærslu náms og færni og þátttöku í daglegu lífi. Kynntar verða leiðir til að meta og
vinna með ofangreinda þætti. Tekið er mið af þörfum barna og unglinga á aldrinum 12-18 ára. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum
hópavinnu og umræðum.
Tími: Mið. 10. nóv. kl. 13:00 - 17:00
Verð: 4.600 kr.
Staður: stofa M203 - Sólborg Háskólinn Akureyri


