- Í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins - Fjarkennt frá Hafnarfirði
Hverjum ætlað
Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á aldrinum 6-11 ára sem eru með Aspergersheilkenni eða svipaða röskun á einhverfurófi. Gert
er ráð fyrir að þeir sem sækja þetta námskeið hafi lokið grunnnámskeiði.
Markmið
Að efla þekkingu á sérstökum þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir. Áhersla verður á
þátttöku og færni við ýmis viðfangsefni sem tengjast námi og félagslegum samskiptum í skólanum. Ennfremur á viðurkenndar
leiðir í kennslu og þjálfun félagsfærni hjá þessum nemendum. Að þátttakendur verði betur í stakk búnir til að
mæta þörfum nemenda á markvissan hátt með því að nýta einstaklingsnámskrá og þverfaglegt samstarf. Að skapa vettvang
fyrir foreldra og aðstandendur sem fást við sambærileg verkefni.
Efni
Fjallað verður stuttlega um einhverfurófið og hvað er líkt og ólíkt með Aspergersheilkenni og einhverfu. Ennfremur um félagslega færni og
skilning, skólafærni, einstaklingsnámskrá og yfirfærslu náms. Kynntar verða leiðir til að meta og vinna með ofangreinda þætti.
Tekið er mið af þörfum barna á aldrinum 6-11 ára í grunnskóla. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum hópavinnu og
umræðum.
Kennarar: Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og Sigurrós Jóhannsdóttir sálfræðingur
Tími: Mið. 27. okt. kl.
13:00-17:00
Verð: 4.600 kr.
Staður: stofa M203 - Sólborg Háskólinn Akureyri


