Háskólinn á Akureyri

Námskeiðið byggir á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar  - Í samstarfi við Greiningar-

Ráđagóđir kennarar

Námskeiðið byggir á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar
 - Í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Hverjum ætlað
Námskeiðið er ætlað grunnskólakennurum og öðrum starfsmönnum grunnskóla sem eru með umsjón barna með röskun á einhverfurófi.

Markmið: Efla sjálfstraust kennara og annarra starfsmanna skóla til að takast á við hegðun nemenda.

Efni: Börn með þroskaraskanir eru líklegri en önnur börn til að sýna erfiða hegðun. Það gerir kennslu þeirra oft á tíðum krefjandi. Kennarar eyða miklum tíma í að stjórna hegðun og það tekur áherslu frá náminu. Hvernig er hægt að fyrirbyggja það? Á námskeiðinu verða kenndar hagnýtar leiðir til árangurs.
Æskilegt er að þeir kennarar eða starfsmenn grunnskóla sem eru að nota umbunarkerfi (stjörnukerfi, hvatakerfi) komi með þau á námskeiðið. Námskeiðið byggist á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar.

Drög að dagskrá:
Hegðun barna á einhverfurófi
Æskileg eða óæskileg hegðun?
Hvernig aukum við jákvæðni nemenda?
Umbunarkerfi í skólum - kostir og gallar
Einstaklingsmiðuð umbunarkerfi eða umbunarkerfi fyrir bekkinn?
Útfærslur á umbunarkerfum í grunnskólanum
Umræður

Kennari: Sigurrós Jóhannsdóttir, sálfræðingur
Tími: Þri. 1. feb. kl. 13:00-16:00
Verð: 8.800 kr.
Staður: stofa M202 Sólborg HA - í fjarkennslu frá Hafnarfirði, fellt niður vegna ónógrar þátttöku þar

Blar Gulur Hvitur
A A A
Fjóla Ţorsteinsdóttir

„Persónulegt námsumhverfi er ţađ sem heillar mig mest viđ Háskólann á Akureyri.“

Fjóla Ţorsteinsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf