|
Þekking og skilningur: |
Að loknu námi á nemandi að: |
|
Tegund þekkingar: |
Að loknu námi á nemandi að: - Geta útskýrt hver eru gagnkvæm áhrif mannsins og hafsins, og geta greint frá áhrifum umhverfis- jafnt sem hagfræðilegra þátta á sjávarútveg og hvernig þekkingu á þeim er beitt til að stjórna verkefnum í sjávarútvegi. - Geta sýnt fram á að hann hafi tileinkað sér víðtæka þekkingu og skilning sem nær til nýjustu þekkingar á kjörsviði sínu innan sjávarútvegsfræða. |
|
Hagnýt hæfni: |
Að loknu námi á nemandi að: - Geta settt sér markmið í verkefnavinnu, gera starfsáætlun og fylgja henni. - Geta sýnt fram á hæfni í almennum vinnubrögðum á rannsóknastofu, og í vetvangsferðum þar sem gögnum er safnað. - Geta notað aðferðafræði fjármála sem og raunvísinda til að stjórna hagnýtum verkefnum á sjávarútvegssviðinu. Að því loknu á hann að geta tekið og réttlætt hagnýtar ákvarðanir byggðar á faglegri úrvinnslu gagna og á fræðilegri þekkingu. - Sýna fram á færni við ritun skýrslna og annarra tækni- og fræðilegra greinargerða sem standast þær kröfur sem gerðar eru innan fræðigreinarinnar. |
|
Fræðileg hæfni: |
Að loknu námi á nemandi að: - Vera fær um að beita vísindalegri gagnrýni á eigin verk og annarra á sínu sérsviði og geta gert grein fyrir mikilvægi nákvæmni, og óvissu við söfnun, skráningu og greiningu gagna. - Geta nýtt þekkingu sína og skilning við fræðilega iðju og búa yfir hæfni til að rökstyðja jafnt fræðilegar sem hagnýtar úrlausnir á vandamálum tengdum sjávarútvegi. |
|
Hæfni til samskipta: |
Að loknu námi á nemandi að: - Hafa öðlast færni í túlkun og kynningu rannsóknaniðurstaðna á sínu sviði og geti miðlað af reynslu sinni, hugmyndum og kunnáttu fyrir samstarfsaðilum, jafningjum sem og og almenningi. - Hafa getu til virkrar þátttöku í samstarfi þar sem vænta má ólíkrar nálgunar samstarfsaðila á viðfangsefni á sínu sviði. |
|
Námshæfni: |
Að loknu námi á nemandi að: - Hafa sýnt fram á nauðsynlega námshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, víðsýni og frumleika í hugsun til að geta tekist á við krefjandi störf og áframhaldandi nám á sínu fræðasviði. |


