Þjónustuborð nemendaskrár

Þjónustuborð er staðsett í afgreiðslu á 1. hæð A-álmu á Sólborg.

  • Opið er frá 8.00-15.30 alla virka daga.
  • Símanúmer á skiptiborði (afgreiðslu): 460 8000 frá kl. 9.00-15.30

Hafa samband við þjónustuborð í tölvupósti. Þú getur líka haft samband í gegnum netspjallið hér á vefnum.

Þjónusta við stúdenta

Á þjónustuborði getur þú meðal annars:

  • Fengið vottorð og yfirlit yfir námsferla
  • Keypt prentkvóta

Ýmis önnur þjónusta er veitt á þjónustuborðinu. Ef ekki verður hægt að þjónusta stúdenta með erindi sín verður þeim vísað rétta leið.

Athugið að erindi stúdenta eru aðeins afgreidd í gegnum HA-netföng stúdenta.

Þjónusta við kennara og starfsfólk

Á þjónustuborði geta kennarar og starfsfólk meðal annars:

  • Bókað stofur vegna annars en kennslu
  • Fengið ýmsar smávörur afgreiddar

Ýmis önnur þjónusta er veitt á þjónustuborðinu. Ef ekki verður hægt að þjónusta starfsfólk eða kennara með erindi sín verður þeim vísað rétta leið.

Gagnlegar upplýsingar