Af hverju líftækni Hvað er verið að læra
Samstarf |
Með líftækni er átt við hvers konar notkun lifandi fruma eða örvera, þar með talið erfðabreyttra lífvera eða hluta þeirra, í iðnaði, til rannsókna eða í öðrum verkefnum sem tengjast lausn vandamála í matvæla-, fóður- og tengdum iðnaði, í umhverfinu eða á sviði heilbrigðismála. B.Sc. námið veitir sterkan þverfaglegan grunn sem nýtist vel til frekara náms og til starfa á ýmsum sviðum líftækninnar.
Undirstöðuraungreinar eru kenndar á fyrsta árinu og sérhæfðari líftæknifög og viðskiptagreinar síðar. Markmiðið er að gera nemendur eftirsótta til starfa í hinum fjölbreyttu verkefnum á sviði líftækni, og til sjálfstæðrar starfsemi við frekari virðisauka auðlinda landsins til sjávar og sveita, og auka heilbrigði einstaklinga. Leggur brautin mikið upp úr nánu samstarfi við starfandi fyrirtæki í greininni.
Valnámskeiđ deildar
Valnámskeið eru kennd eftir því sem að þátttaka fæst hverju sinni. Miðað er við að jafnaði að tíu nemendur séu skráðir í hvert námskeið. Fjöldi valnámskeiða í boði á hverri önn er takmarkaður. Nemendur geta tekið sem valnámskeið námskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla á Íslandi. Slíkt val er þó alltaf háð samþykki deildarforseta hverju sinni.


