M.Sc. í viðskiptafræði
Meistaranám í viðskiptafræðum við Háskólann á Akureyri er 90 ECTS eininga nám. Mögulegt er að ljúka 120 ECTS MSc
námi með því að skrifa viðameira lokaverkefni, eða 60 ECTS eininga. Megin munurinn á þessum tveimur tegundum lokaverkefna er umfang
rannsóknarinnar. Þegar um stærra lokaverkefnið er að ræða er gerð mun meiri krafa um öflun frumgagna með rannsókn jafnframt því
sem gerðar eru ítarlegri kröfur um aðferðafræði við greiningu gagna.
Meistaranám í alþjóðaviðskiptum:
1. ár haustmisseri
RAA3105 Rannsóknaraðferðir
AÞV3105 Alþjóðaviðskipti- og alþjóðastofnanir
1. ár vormisseri
AST3105 Alþjóðleg stefnumótun
FFB3105 Fjármál fyrirtækja
2. ár haustmisseri
FÁR3105 Forysta og árangur (kjarni)
AFJ3105 Alþjóðafjármál og bankastofnanir (val)
AMÞ3105 Alþjóðleg mannauðs- og þekkingarstjórnun
(val)
2. ár vormisseri
MPV3115 Meistaraprófsverkefni (30-60 ECTS einingar)
Námsframvinduregla
Til að standast hvert námskeið þurfa nemendur að ná einkunninni
5,0.
Til þess að nemendur geti útskrifast verða þeir að hafa 6,5 í meðaleinkunn allra námseininga, þ.e.
námskeiða og lokaritgerðar.
Innritunargjald og annar kostnaður
Innritunargjald fyrir skólaárið 2010/2011 er 45.000 kr. á ári. Nemendur bera allan beinan
kostnað við námið, þ.m.t. heimsóknir í fyrirtæki, námsferðir, bókakostnað. o.s.frv.
Ferðakostnaður nemenda o.fl.
Nemendur koma í fjórar (4) námslotur á hverju misseri. Nemendur bera allan
kostnað (ferðir, gisting, fæði o.fl.) og bera ábyrgð á eigin ferðatilhögun.
Hægt er að fletta bæklingnum hér að ofan með því að smella á myndina, flett er með örvalyklunum eða með
því að smella músinni á horn bæklingsins.


