Háskólinn á Akureyri

Reglur við mat í náms- og matsnefnd viðskiptadeildar Til að ljúka prófi í viðskiptafræðum

Reglur náms- og matsnefndar viđskiptaskorar

Reglur við mat í náms- og matsnefnd viðskiptadeildar

  • Til að ljúka prófi í viðskiptafræðum þarf nemandi ætíð að ljúka minnst 60 ECTS-einingum í deildinni (valið í samráði við deildina) óháð því hve mikið viðkomandi fær metið annars staðar frá.
  • Einkunn þarf að vera 6,0 eða hærri í þeim námskeiðum sem metin eru.
  • Hafi námskeiði sem óskað er eftir mati á verið lokið fyrir meira en 5 skólaárum skal aðeins heimilt að samþykkja mat þar sem um beina samsvörun er að ræða við námskeið á viðkomandi braut við deildina. Skal þá umsjónarkennari þess námskeiðs ráða hvort af matinu verður. Ekki er hægt að meta slíkt námskeið á móti valnámskeiði.
  • Sé óskað mats á námskeiði sem notað er til eininga við aðra háskólagráðu sem lokið er með lágmarkseiningafjölda er heimilt að veita undanþágu frá skráningu í námskeiðin engu að síður þarf nemandi að ljúka fullum einingafjölda. Séu einingar sem teknar voru umfram lágmarkseiningafjölda vegna háskólagráðunnar má þó að hámarki meta einingar til jafns við umframeiningar gráðunnar.
  • Ekki er í boði fyrir nemendur að taka fleiri en eina braut þ.e. nemendur í viðskiptafræði geta einungis lokið þeirri braut sem þeir eru skráðið á, en geta að sjálsfsögðu tekið fleiri námskeið en það komi fram sem aukanámskeið á námsferli.
  • Þegar metið er tveggja ára háskólanám eða styttra inn í deildina skal ekki meta lokaársnámskeið við HA.
  • Ekki er hægt að meta nám frá skólum sem ekki teljast á háskólastigi.

Mat á 70 eininga námi frá rekstrardeild Háskólans á Akureyri (útskrifaðir nemendur) og mat á iðnrekstrarfræði frá Tækniháskóla Íslands (120 ECTS-einingar)

  • Nemendur þurfa að ljúka minnst 66 ECTS-einingum frá viðskipta- og raunvísindadeild til þess að útskrifast með B.S. gráðu.
  • Nemendur taka 3ja árið á Stjórnunarbrautinni auk námskeiðsins FJÁ2203 Fjármálamarkaðir.

Mat á rekstrarfræðinámi frá Símenntun HA

  • Eftirtalin námskeið eru metin inn í viðskiptaskor: FHB2103 Fjárhagsbókhald, FJÁ2103 Fjármál I, ÞJÓ2103 Þjóðhagfræði, LÖG2103 Viðskiptalögfræði, MAR2103 Markaðsfræði I,SKS2103 Skattskil, STJ2103 Stjórnun I, Val 12 ECTS-einingar, samtals 54 ECTS-einingar.

Mat á námi frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands

 

 

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf