Háskólinn á Akureyri býður einn
íslenskra háskóla upp á þriggja ára nám í sjávarútvegsfræði til B.S.-gráðu. Kennd eru
undirstöðunámskeið raun- og viðskiptagreina. Sérnámskeið á sjávarútvegslínu eru um vistkerfi sjávar og veiðar og
vinnslu sjávarafurða. Á síðasta námsári vinnur nemandinn lokaverkefni samhliða námskeiðum. Að námi loknu getur nemandi kallað
sig sjávarútvegsfræðing.Nám í sjávarútvegsfræðum er mjög vítt og krefst þess að nemandinn kunni skil á grunnhugtökum í raunvísindum og viðskiptum sem og þáttum er snerta sjávarútveginn beint. Námið er því þverfaglegt og sérstakt í íslenskri námsflóru. Markmið námsins er að veita nemendum þverfaglegan þekkingargrunn til stjórnunarstarfa í sjávarútvegi eða tengdum greinum að námi loknu, ásamt því að veita breiðan grunn til frekara náms. Slík menntun er forsenda góðrar auðlindastjórnunar og skipulags og ýtir undir sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun. Mikil áhersla er lögð á samvinnu við fyrirtæki og stofnanir sem vinna við sjávarútveg og stoðgreinar hans, m.a. í tengslum við lokaverkefni nemanda.
Forsendur náms í sjávarútvegsfræðum
Sjávarútvegurinn er ferli sem nær allt frá hafinu, til þess að afurðin er komin á disk neytenda á innlendum eða alþjóðlegum
mörkuðum. Sjávarútvegur er því mjög fjölbreyttur og rúmar mörg starfssvið.
Íslenskur sjávarútvegur hefur verið alþjóðlegur frá 15. öld og hefur lengi verið okkar mikilvægasti atvinnuvegur. Nýjasta tækni sem oft er hönnuð og smíðuð hér á landi er notuð á flestum stigum hans og því er óhætt að segja að íslenskur sjávarútvegur sé einn sá framsæknasti í heimi. Íslenskar sjávarafurðir hafa einnig orð á sér erlendis fyrir að vera gæðavara og þess vegna seljast þær oft á hærra verði en vörur keppinautanna. Til að halda þessari stöðu þarf sjávar útvegurinn að viðhalda stöðugri framþróun og háu menntunarstigi. Litið er á það sem meginmarkmið kennslu í sjávarútvegsfræðum að brautskrá hæft fólk til stjórnunarstarfa í greininni til að viðhalda því orðspori og framsækni sem einkennir hana.
Eftir nám
Sá sem útskrifast úr sjávarútvegsfræði á að þekkja helstu atriði í sjávarútvegsferlinu. Lögð er áhersla á að brautskráðir nemendur hafi heildarsýn sem gerir þeim kleift að komast í stjórnunarstöður hvar sem er í heiminum og að þeir kunni að leita aðstoðar annarra sérfræðinga þegar þörf er á. Reynslan hefur sýnt að námið nýtist einnig víða því allt að helmingur sjávarútvegsfræðinga starfar nú utan sjávarútvegsins, til dæmis hjá tölvufyrirtækjum og bönkum.
Framhaldsnám
B.S.-próf frá auðlindadeild HA er góður grunnur fyrir framhaldsnám í fjölmörgum greinum náttúruvísinda, hvort sem er við innlenda eða erlenda háskóla. Auk náms við aðra háskóla standa til boða tvær leiðir til meistaranáms við HA. Annars vegar er hægt að fara beint í meistaranám í auðlindafræðum og hins vegar er hægt að velja meistaranám í viðskiptafræðum.
|
„Helsti kostur þess að læra sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri er hvað námið er fjölbreytt og gefur manni viðamikla þekkingu. Það skapar marga möguleika þegar komið er út í atvinnulífið.“ Jón Benedikt Gíslason |
![]() |



