Háskólinn á Akureyri

Hægt er að fletta bæklingnum hér til hliðar með því að smella á myndina, flett er með

Umhverfis- og orkufræði

Fletta kynningarbæklingi 2009Hægt er að fletta bæklingnum hér til hliðar með því að smella á myndina, flett er með örvalyklunum eða með því að smella músinni á horn bæklingsins.

B.Sc. námi í umhverfis- og orkufræðum er almennt grunnnám í náttúruvísindum. Áhersla er lögð á jarðvísindi, vistfræði- og vatnafræði, áhrif mengunar á umhverfi, auðlindanýtingu og auðlindastjórnun, sem og umhverfismat og umhverfisskipulag. Ennfremur er fjallað um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa eins og jarðvarma, vatnsafl, sólarorku, vindorku, sjávarfallaorku, lífmassa o.fl. Auk þess er fjallað um efnarafala og vetni sem orkubera. Markmið námsins er að nemendur þekki vel helstu ferla í náttúrunni og áhrif mannsins á umhverfi sitt. Einnig er markmiðið að þeir kynnist tæknilegum vinnubrögðum við öflun orku og orkunýtingu á sjálfbæran hátt og fái innsýn í stjórnun orkumála og mörkun orkustefnu. Störf að námi loknu tengjast m.a. ráðgjöf og vinnu hjá orku- og iðnfyrirtækjum og vinnu við umhverfismat og skipulag hjá sveitarfélögum, fyrirtækjum og ríkisstofnunum. Námið er jafnframt góður undirbúningur fyrir kennara í náttúruvísindum í grunn- og framhaldsskólum.


Valnámskeið fræðasviðs

Valnámskeið eru kennd eftir því sem að þátttaka fæst hverju sinni. Miðað er við að jafnaði að tíu nemendur séu skráðir í hvert námskeið. Fjöldi valnámskeiða í boði á hverri önn er takmarkaður. Nemendur geta tekið sem valnámskeið námskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla á Íslandi. Slíkt val er þó alltaf háð samþykki forseta fræðasviðsins hverju sinni.


Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Jónsdóttir

„Hjúkrunarfræði við HA er fjölbreytt og líflegt nám.“

Jóhanna Jónsdóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf