Fjarnám frá viðskipta- og raunvísindasviði
Námsframboð veturinn 2010-2011
Viðskipta- og raunvísindasvið býður upp á fjarnám í viðskiptafræðum og
auðlindafræðum. Hægt er að velja nám með mismunandi áherslum:
- Viðskiptafræði
Áhersla á stjórnun og fjármál eða stjórnun og markaðsfræði - Auðlindafræði
Áhersla á líftækni, sjávarútvegsfræði eða umhverfis- og orkufræði
Viðskiptafræði
Hvar verður námið í boði?
Fjarnámið verður í boði á þeim fjarkennslustöðum sem gildur samningur er til
staðar, óháð hópastærð.
Fjarnám verður í boði á Akureyri skólaárið 2010-2011, fyrirkomulagið verður með sama hætti og annað fjarnám í
viðskiptadeild.
Nám og kennsla
Námsefni og öðrum samskiptum við nemendur verður fyrst og fremst miðlað um myndfundabúnað, Moodle og Blackboard. Einnig er ætlast til að
nemendur komi til Akureyrar einu sinni á misseri. Til viðbótar eru upptökur úr fyrirlestrum staðarnema og þulaðar glærur. Þær
aðferðir eru notaðar sem gefa góða raun hverju sinni og taka þær mið af búnaði og tækni á hverjum tíma. Samstarfið við
fræðslu- og símenntunarstöðvar hefur gefið mjög góða raun ekki síst vegna þess hópeflis og samstarfs nemenda sem þar fer
fram.
Hvenær er kennt?
Fjarfundir fara fram utan venjulegs vinnutíma, þ.e. á virkum dögum eftir kl. 17:00 og á laugardögum. Önnur miðlun er að mestu óháð
stund og stað. Þannig er mögulegt að svara eftirspurn eftir námi í viðskiptafræði frá fólki sem vill eða þarf að vinna
með náminu.
Hópastærðir
Almennt verða námskeið ekki kennd nema heildarfjöldi skráðra nemenda í viðkomandi námskeiði sé a.m.k. tíu.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ása Guðmundardóttir skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs í síma 4608037, netfang asa@unak.is.
Auðlindafræði
Hvar verður námið í boði?
Námið er í boði óháð staðsetningu.
Nám og kennsla
Við miðlun námsins verður mest stuðst við Moodle, Blackboard, heimasíður kennara og upptökur úr fyrirlestrum staðarnema. Í þeim
námskeiðum sem eru samkennd með viðskiptafræði fer kennsla fram í myndfundabúnaði. Kennsla í verklegum þáttum námskeiða
fer fram í lotum og er þá nauðsynlegt að nemendur komi til Akureyrar.
Hvenær er kennt?
Kennsla verður að mestu leyti óháð stund og stað. Þau námskeið sem kennd eru í myndfundum eru að jafnaði eftir kl. 17:00 á virkum
dögum eða á laugardögum.
Hópastærðir
Almennt verða námskeið ekki kennd nema heildarfjöldi skráðra nemenda í viðkomandi námskeiði sé a.m.k. tíu.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ása Guðmundardóttir skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs í síma 4608037, netfang asa@unak.is


