Viðskiptafræði við Háskólann á
Akureyri er hagnýtt nám þar sem einstaklingar eru menntaðir til ábyrgðarstarfa, m.a. með þjálfun í faglegum vinnubrögðum og
gagnrýnni hugsun við ákvarðanatöku, stjórnun og stefnumótun. Samhliða eru nemendur þjálfaðir í fræðilegum
vinnubrögðum sem nýtast munu í framhaldsnámi og starfi. Allir nemendur öðlast góða grunnþekkingu á viðskiptafræði og geta
svo valið að leggja sérstaka áherslu á stjórnun og fjármál eða stjórnun og markaðsfræði.
Deildin sýnir frumkvæði í íslensku menntakerfi á sínum sérsviðum og bregst við þörfum markaðarins á hverjum tíma. Slíkt er meðal annars gert með virkum tengslum við fyrirtæki með verkefnavinnu og tengslum við rannsóknarstofnanir.
|
Áherslusvið eru:
|
Allir vegir færir að námi loknu
Viðskiptafræði opnar margar spennandi leiðir að námi loknu, bæði til starfa og framhaldsnáms. Viðskiptafræðingar frá
Háskólanum á Akureyri eru eftirsóttir starfskraftar og starfa meðal annars sem ráðgjafar, framkvæmdastjórar,
fjármálastjórar, starfsmannastjórar, markaðsstjórar eða verkefnastjórar. Einnig hefur námið reynst góður grunnur fyrir
þá sem fara í framhaldsnám, bæði hérlendis og erlendis. Námið veitir prófgráðuna B.S. í
viðskiptafræði.
|
„Viðskiptanám á háskólastigi hafði alltaf verið á dagskrá og eftir að hafa starfað í Noregi um stund var stökkið tekið. Háskólinn á Akureyri var alltaf fyrsti kostur yfir háskóla á Íslandi, fámennir bekkir, nálægð við leiðbeinendur og búsetuskilyrðin eru til fyrirmyndar. Námið er á margan hátt krefjandi en umfram allt skemmtilegt. Námsaðstaða og umhverfi skólans er glæsilegt og aðgengi að tæknibúnaði er framúrskarandi“ Valdemar Pálsson |
![]() |



