Aðjúnkt í iðjuþjálfunarfræðideild

Laust er til umsóknar fullt starf (100%) aðjúnkts í iðjuþjálfunarfræði með sérþekkingu á byggingu og starfsemi mannslíkamans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að öflugum einstaklingi með góða þekkingu á líffæra- og lífeðlisfræði. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka þekkingu á byggingu og starfsemi mannslíkamans með sérstakri áherslu á stoðkerfi, skyn, hreyfistjórnun og hugarstarf. Viðkomandi þarf einnig að hafa góða innsýn í hugmyndafræði ICF, alþjóðlega flokkunarkerfið um færni, fötlun og heilsu, skerðingar á líkamsstarfsemi og almennar leiðir til að efla heilsu og þátttöku.

Starfið felur í sér kennslu, rannsóknir og stjórnun. Næsti yfirmaður er forseti iðjuþjálfunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt sem fyrst.

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í iðjuþjálfunarfræði. Haustið 2017 hófst kennsla eftir nýrri námskrá í þriggja ára BS námi í iðjuþjálfunarfræði. Til að fá starfsréttindi sem iðjuþjálfi er nauðsynlegt að ljúka BS-prófi í iðjuþjálfunarfræði og eins árs viðbótarnámi í iðjuþjálfun á meistarastigi (Diploma). Framhaldsnámið er að miklu leyti verklegt og fer fram að hluta til í fjölbreytilegu starfsumhverfi iðjuþjálfa.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er krafa
  • BS próf í heilbrigðisgreinum frá viðurkenndum háskóla er æskilegt.
  • Íslenskt starfsleyfi iðjuþjálfa er kostur.
  • Reynsla af háskólakennslu er kostur.
  • Þekking á líffæra- og lífeðlisfræði er krafa.
  • Þekking og reynsla af starfi við endurhæfingu er kostur
  • Þekking og reynsla af ICF er kostur
  • Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla þekkingu.
  • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá.
  • Staðfest afrit af prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
  • Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum iðjuþjálfunarfræðideildar Háskólans á Akureyri.

Háskólinn á Akureyri hvetur öll kyn til þess að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2023

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri nr. 694/2022. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veitir

Sigrún Kristín Jónasdóttir, deildarforseti - sigrunk@unak.is - 460 8468

Smelltu hér til að sækja um starfið