Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu aðjunkts við Lagadeild Hug- og félagsvísindasviðs. Ráðningin er tímabundin til eins árs án möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst til undirbúnings næsta skólaárs 2022-2023. Starfsstöðin er á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og rannsóknir í lagadeild á BA stigi og ML stigi, einkum í inngangsnámskeiðum í lögfræði og réttarheimildafræði og á sviði fjármuna-, kröfu- og skaðabótaréttar. Önnur verkefni felast m.a. í umsjón kynningamála lagadeildar, móttöku og umsjón nýnema auk daglegra starfa innan Lagadeildar.
Umsækjendur þurfa að geta tekið virkan þátt í framkvæmd og þróun sveigjanlegs náms og almennri uppbyggingu náms við deildina. Sérstaða laganáms við Háskólann á Akureyri felst í framsýnu, sveigjanlegu námi þar sem ekki er gerður greinarmunur á staðnámi og fjarnámi.
Hæfniskröfur
Menntunarkröfur:
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- Lögmannsréttindi.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af háskólakennslu er skilyrði.
- Reynsla af málflutningi.
- Reynsla af háskólakennslu er skilyrði og æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af kennslu í sveigjanlegu háskólanámi.
- Þekking á kennslukerfi háskólanna, Uglu og Canvas.
- Fullt vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
- Gott vald á ensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Færni og lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni.
- Geta til að vinna undir álagi.
- Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á sérstöðu laganáms við HA.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
- Staðfest afrit af prófskírteinum.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
- Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda sem háskólakennari.
Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Lagadeildar Háskólans á Akureyri.
Umsóknarfrestur er til og með 07.07.2022
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 387/2009. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.
Starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar veitir
Rachael Lorna Johnstone, Deildarforseti - rlj@unak.is - 4608666
Birgir Guðmundsson, Sviðsforseti - birgirg@unak.is - 4608658
Smelltu hér til að sækja um starfið