Sjónaukinn 2022: Skráning

Sjónaukinn, árleg ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri, verður haldin rafrænt dagana 19.-20. maí. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er Áskoranir framtíðarinnar: Velferðarþjónusta í nærumhverfi.

Viðburðurinn mun fara fram á Zoom og því er mikilvægt að skrá sig hér til að fá aðgang að fundunum. Hlekki á fundina færð þú í tölvupósti eftir skráningu. Ef þú ert búin að skrá þig en færð ekki tölvupóstinn getur þú haft samband við Áslaugu Lind Guðmundsdóttur, verkefnastjóra á Heilbrigðisvísindasviði, aslaug@unak.is.