Akureyrarbær og HA endurnýja samning

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar og Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri endurnýjuðu samstarfssamning um stuðning bæjarins við verkefnasjóð háskólans, svokallaðan Akureyrarsjóð á föstudaginn var.
Akureyrarbær og HA endurnýja samning

Verkefnasjóðurinn kemur í stað fjölda smærri styrkja sem áður voru veittir til ýmissa verkefna á vegum skólans svo sem ráðstefnur, málstofur eða málþing, útgáfu- og kynningarstarfsemi svo og annað sem stjórnin telur falla að þessu reglum.

Samningurinn gildir til loka ársins 2019. Samtals mun styrkfjárhæð nema tveimur milljónum króna á samningstímanum. Úthlutun er í höndum þriggja manna stjórnar sem skipuð er af háskólaráði til tveggja ára í senn.