Dósent við HA fær hæsta styrk úr Byggðarannsóknasjóði

Margrét Hrönn Svavarsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild HA, hlaut hæsta styrk úr Byggðarannsóknasjóði
Dósent við HA fær hæsta styrk úr Byggðarannsóknasjóði

Margrét Hrönn Svavarsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild HA, hlaut hæsta styrk úr Byggðarannsóknasjóði til verkefnisins Lífsstíll, áhættuþættir og sjálfsumönnun einstaklinga með kransæðasjúkdóm (KRANS rannsóknin). Styrkurinn nemur 3,5 mkr.

Markmið rannsóknarinnar er m.a. að skoða lífsgæði, heilsulæsi og sjálfsumönnun sjúklinga, þekkingu þeirra á sjúkdómnum og fræðsluþarfir. Skoðað verður hvort einstaklingar í dreifbýli fái þá endurhæfingu, fræðslu og stuðning sem þeir þurfa til að lifa með sjúkdómnum og takast á við afleiðingar hans og á hvern hátt best er að koma til móts við þarfir þessa hóps. Einnig verður skoðað hvernig heilbrigðiskerfið uppfyllir þarfir einstaklinga á landsbyggðinni fyrir fræðslu og hvernig þeim gengur að takast á við lífsstílsbreytingar, samanborið við einstaklinga í þéttbýli.

Í verkefnislýsingu kemur fram að kransæðasjúkdómar eru algengasta dánarorsökin hér á landi og því sé fræðsla og stuðningur við þennan sjúklingahóp mikilvægur.
Tilkynnt var um styrki úr Byggðarannsóknasjóði á ársfundi Byggðastofnunar þann 25. apríl. Alls fengu fjögur verkefni styrk.

Nánar á vef Byggðastofnunar