Fullur skóli af stelpum

230 stelpum úr 30 skólum á Norðurlandi tóku þátt í Stelpur og tækni
Fullur skóli af stelpum

Síðastliðinn þriðjudag, 15. maí, fylltist háskólinn af fróðleiksfúsum stelpum í 9. bekk á viðburðinum Stelpur og tækni. Rúmlega 230 stelpum úr 30 skólum á Norðurlandi tóku þátt í vinnusmiðjum og heimsóttu tæknifyrirtæki á Akureyri með konur í fararbroddi.

Verkefnið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík að fyrirmynd Girls in ICT Day sem haldinn er víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.

Háskólinn í Reykjavík á frumkvæðið að verkefninu sem snýr að því að kynna stelpum nám í tæknigreinum, kynna þær fyrir fyrirmyndum í tækni og opna augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða.

Nánar á vef HR.