Vísindadagur SAk: Kall eftir rannsóknum

Vísindadagur Sjúkrahússins á Akureyri verður haldinn í samvinnu við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri 20. september.
Vísindadagur SAk: Kall eftir rannsóknum

Vísindadagur Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) verður haldinn í samvinnu við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri (HHA) fimmtudaginn 20. september 2018.

Á Vísindadeginum verða rannsóknir/verkefni starfsmanna SAk og HHA kynnt auk þess sem veggspjöld er lýsa niðurstöðum rannsókna/verkefna verða til sýnis.

Þeir sem hafa áhuga á því að kynna rannsóknir/verkefni á Vísindadeginum, annaðhvort með fyrirlestri eða veggspjaldi, eru hvattir til að senda umsókn á netfangið laufeyh@sak.is ekki síðar en 31. júlí 2018.

Umsóknareyðublað

Laufey Hrólfsdóttir, forstöðumaður deildar mennta, vísinda og gæða (laufeyh@sak.is) veitir frekari upplýsingar ef þörf krefur.