Herra Ólafur Ragnar Grímsson heiðursdoktor við HA

Hug- og félagsvísindasvið veitir herra Ólafi Ragnari Grímssyni heiðursdoktorsnafnbót á sviði félagsvísinda
Herra Ólafur Ragnar Grímsson heiðursdoktor við HA

Þann 30. september næstkomandi veitir Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri hr. Ólafi Ragnari Grímssyni heiðursdoktorsnafnbót á sviði félagsvísinda.

Ólafur Ragnar Grímsson hefur markað djúp spor í Íslandssöguna á farsælum ferli sem fræðimaður, þjóðhöfðingi og alþjóðlegur stjórnmálamaður.

Ólafur Ragnar var brautryðjandi á sviði félagsvísinda á Íslandi og varð lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 1970 og síðan prófessor þremur árum seinna. Hann haslaði sér snemma alþjóðlegan völl sem nafn innan stjórnmálafræðinnar og eftir hann liggja margar fræðigreinar í íslenskum og erlendum tímaritum.

Ólafur hefur ekki aðeins rannsakað stjórnmálin því þátttaka hans í þeim hefur einnig verið veruleg, bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Á sínum pólitíska ferli var Ólafur ritstjóri, þingmaður og ráðherra og formaður Alþýðubandalagsins frá 1987 – 1995. Hann starfaði jafnframt á erlendum vettvangi og var meðal annars um árabil í forsvari fyrir alþjóðlegu þingmannasamtökin Parliamentarians for Global Action.

Forsetatíð Ólafs Ragnars var um margt sérstök og markaði tímamót á ýmsum sviðum. Ekki einungis sat hann lengur en áður hafði þekkst heldur mörkuðu ýmsar ákvarðanir hans og túlkun á stjórnskipuninni tímamót. Má í því sambandi nefna túlkun hans á ákvæðum stjórnarskrár um heimild forseta til að synja lögum staðfestingar.

Málefni Norðurslóða hafa lengi verið Ólafi Ragnari hugleikin og á umliðnum árum hefur hann verið í lykilhlutverki við að setja þá umræðu á dagskrá alþjóðasamfélagsins. Þar ber líklega hæst að hann er stofnandi Arctic Circle, stærsta og mikilvægasta vettvangs alþjóðlegrar umræðu um samvinnu og framtíð norðurslóða og í raun jarðarinnar allrar.

Háskólinn á Akureyri naut velvildar og stuðnings Ólafs Ragnars Grímssonar þegar skólinn markaði sér bás með áherslu á norðurslóðir, bæði meðan Ólafur var forseti og æ síðan. Þá er fræðileg nálgun á stjórnskipun og stjórnmál í víðum skilningi meðal helstu viðfangsefna fræðafólks á Hug- og félagsvísindasviði Háskólans, en eins og að ofan greinir eru það svið þar sem Ólafur hefur látið ríkulega að sér kveða.  Það er því mjög við hæfi og mikill heiður fyrir skólann að veita Ólafi Ragnari heiðursdoktorsnafnbót í félagsvísindum.

Í tilefni af veitingu heiðursdoktorsnafnbótarinnar verður haldið málþing undir yfirskriftinni „Háskólar, lýðræði og Norðurslóðir – breytt heimsmynd” við Háskólann á Akureyri. Málþingið fer fram sama dag frá kl. 10 – 15 þar sem forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, og aðrir fræðimenn fjalla um og eiga orðastað við Ólaf um mikilvæga málaflokka þar sem Ólafur Ragnar hefur látið mikið að sér kveða. Í framhaldi af málþinginu fer fram formleg athöfn þar sem Ólafi Ragnari verður veitt  heiðursdoktorsnafnbót.

Öll eru hjartanlega velkomin til þess að sækja málþingið og athöfnina

Áhugasöm þurfa að skrá sig til þátttöku hér