Þróun og hönnun á námsefni til að efla ferðaþjónustu

Rannsóknarmiðstöð ferðamála tekur þátt í spennandi Erasmus+ verkefni
Þróun og hönnun á námsefni til að efla ferðaþjónustu

Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) er þátttakandi í Erasmus + verkefni sem ber heitið „Tourism Crisis Navigation“ og snýr að því að þróa og hanna námsefni til að efla getu ferðaþjónustufyrirtækja að takast á við krísu. Allt efni sem verður til í þessu verkefni verður hægt að nálgast án endurgjalds á heimasíðu verkefnisins. Verkefninu lýkur formlega í lok ágúst á þessu ári.

„Í grunnin er verkefninu ætlað að þróa námsskrá og námsefni til að gera ólíkum menntastofnunum kleift að bjóða upp á fræðslu og þjálfun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustunni og frumkvöðla framtíðar, til þess að öðlast þá færni, tæki og tól sem nauðsynleg eru til að takast á við krísu á áhrifaríkan hátt,” segir Íris Hrund Halldórsdóttir, sérfræðingur hjá RMF.

Fjórða fréttabréf verkefnisins var að koma út og þar gefur að sjá margt áhugavert. Meðal annars er viðtal við David Blunck sem er einn af þátttakendum verkefnisins. En David er stofnandi og forstjóri þýska ráðgjafafyrirtækisins the Vision Work og hefur hann víðtæka reynslu af fyrirtækjaráðgjöf. Hlutverk hans og hans starfsfólks í verkefninu er að hanna og búa til kennsluefni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki um það hvernig þau geta á sem bestan hátt tæklað hvers konar krísu ástand.

Mikilvægt er að geta lært af öðrum og geta dregið lærdóm af reynslu annarra til að vera betur undirbúin þegar krísu ber að garði. Þátttakendur verkefnisins hafa tekið saman fjölbreytt „case study“ um það hvernig fyrirtæki í ferðaþjónustu tókust á við COVID-19 krísuna. Í fréttabréfinu má sjá nokkur þeirra og þar á meðal tvö frá Íslandi.