Er sáttameðferð raunhæf í kynferðisbrotum?

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi - Rafrænir hádegisfyrirlestrar á vegum Háskólans á Akureyri.

Þann 25. nóvember nk. hefst sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi og er það Mannréttindaskrifstofa Íslands sem stendur fyrir átakinu. Að þessu tilefni verður boðið upp á rafræna fyrirlestra á þessu tímabili. Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri vill vekja athygli á átakinu sem og þessum fyrirlestrum. 

Miðvikudaginn 8. desember mun Dr. Margrét Valdimarsdóttir, dósent við Hug- og félagsvísindasvið HA, fara með fyrirlesturinn Er sáttameðferð raunhæf í kynferðisbrotum?

Öll velkomin!

ZOOM HLEKKUR