Forritunarkeppni framhaldsskólanna 2025

8. mars 2025 kl. 09:00-17:30
Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir þessari stórskemmtilegu keppni

Forritunarkeppni framhaldsskólanna verður haldin laugardaginn 8. mars í Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri.

Háskólinn í Reykjavík hefur staðið fyrir Forritunarkeppni framhaldsskólanna í fjölmörg ár og hefur ásókn í keppnina aukist ár frá ári enda til mikils að vinna. Forritunarkeppni framhaldsskólanna er ekki eingöngu ætluð þeim sem hafa reynslu af forritun fyrir heldur er hún fyrir alla framhaldsskólanema, jafnt þá sem hafa lært forritun og aðra. Við hvetjum því alla til að koma og prófa. Keppninni er skipt í þrjár deildir, eftir erfiðleikastigi: alfa, beta og delta.

Dagskrá 2025 

  • 9:00-10:00 Afhending keppnisgagna, uppsetning búnaðar og morgunmatur
  • 10:00-12:30 Liðin vinna að verkefnum keppninnar
  • 12:30-13:30 Hádegismatur
  • 13:30-16:00 Liðin vinna að verkefnum keppninnar
  • 16:15-16:30 Kynning á tölvunarfræðideild
  • 16:30-17:30 Úrslit og verðlaunaafhending

Nánari upplýsingar á vef HR