Fullveldishátíð: Hringing Íslandsklukkunnar

Íslandsklukkunni verður hringt 100 sinnum og fá bæjarbúar nöfn sín skráð í sögubækurnar.

Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands gefst bæjarbúum kostur á að hringja Íslandsklukkunni við Háskólann á Akureyri. Klukkunni verður hringt 100 sinnum og fá bæjarbúar þannig nöfn sín skráð í sögubækurnar.

Skráning

DAGSKRÁ hefst kl. 13 við Íslandsklukkuna

  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri opnar hátíðarhöld Akureyrarbæjar
  • Bæjarbúar hringja Íslandsklukkunni 100 sinnum
  • Karlakór Akureyrar - Geysir
  • Kakó og smákökur í Miðborg Háskólans á Akureyri

ÖLL VELKOMIN