Hágæði í háskólum og nærumhverfi stúdenta, eða hvað?

Hvaða mál brenna mest á stúdentum í dag? Hvers vegna skipta gæðamál háskólanna máli?

Landssamtök íslenskra stúdenta og BORE II* bjóða þér á hágæðaráðstefnu laugardaginn 13. október. Þar verða stærstu hagsmunamál íslenskra stúdenta og gæðamál háskólanna undir smásjánni. Fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri verða á staðnum og þú ert velkomin/n með.

Á ráðstefnunni verða erlendir sérfræðingar sem miðla af þekkingu sinni um þátttöku stúdenta í gæðastarfi háskólanna og vinna með þátttakendum við að þróa stöðu sína sem talsmenn stúdenta í sínu umhverfi. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir þig til að fræðast um stöðu íslenskra stúdenta í dag, uppbyggingu gæðakerfis háskólanna, viðbragðsáætlanir háskóla við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi, Lánasjóð íslenskra námsmanna, húsnæðismál stúdenta og hvernig þú getur haft áhrif á þessi mál og fleiri.

Dagskráin samanstendur af spennandi fyrirlestrum og ögrandi vinnustofum þar sem ráðstefnugestir fá tækifæri til þess að taka þátt og koma sínum skoðunum á framfæri í opnu samtali við aðra stúdenta sem og aðra hagaðila.

Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefst klukkan 9:30 þann 13. október og lýkur klukkan 16:00 með léttum veitingum. Tilvalið tækifæri til þess að halda samtalinu áfram við aðra ráðstefnugesti.

Við hvetjum alla sem láta þessi mál sig varða að skrá sig og mæta.

Við viljum heyra frá ykkur!

*Ráðstefnan er hluti af verkefninu BORE II (Bologna Reform in Iceland II) sem er á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis. BORE II nýtur fjárstyrks frá Erasmus+ og er stýrt af Rannís.