Háskóladagurinn á Akureyri

Velkomin á Háskóladaginn í HA!

Háskóladagurinn verður haldinn á Akureyri 9. mars kl. 11-14

Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er á Íslandi. 

Stúdentar, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða tilbúnir til að spjalla við gesti. Um að gera að nýta tækifærið og spyrja um hvaðeina sem lýtur að drauma náminu og eiga samtal um námsleiðirnar og háskólalífið. 

Þá verður Símenntun HA einnig á svæðinu og kynnir Stjórnendanám og MBA nám.

Við hlökkum til að taka á móti þér í Háskólanum á Akureyri! 

Hvað viltu verða?

Hér á vefnum getur þú skoðað allt nám og fengið upplýsingar um námið og starfsmöguleika.
Í HA eru einnig einstakar námsleiðir sem eru ekki í boði annarsstaðar á landinu.

Vefur Háskóladagsins Facebook viðburður

Öll velkomin!