Háskóladagurinn í Vestmannaeyjum

Háskóladagurinn heimsækir Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.

Háskóladagurinn verður með kynningu í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum mánudaginn 18. mars frá kl. 11:00 til 13:00.

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt, sem telur yfir 500 námsleiðir, og námsráðgjafar verða á staðnum.

Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri.

ALLIR VELKOMNIR!

www.haskoladagurinn.is
www.facebook.com/haskoladagurinn
www.instagram.com/haskoladagurinn
#hdagurinn