Veiting heiðursdoktorsnafnbótar

Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri veitir heiðursdoktorsnafnbót á sviði heilbrigðisvísinda.

Þann 8. nóvember næstkomandi veitir heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri frú Vigdísi Finnbogadóttur heiðursdoktorsnafnbót á sviði heilbrigðisvísinda.

Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur haft mikil alþjóðleg áhrif með störfum sínum og hefur ávalt sýnt hlýju og ræktarsemi við æsku landsins. Heiðursdoktorsnafnbótina hlýtur hún fyrir víðtæk jákvæð samfélagsleg áhrif meðal annars á íslenska tungu, menningu og listir, jafnrétti og skógrækt, ásamt heilbrigðis- og líknarmálum.

Vigdís Finnbogadóttir fæddist í Reykjavík 15. apríl árið 1930. Hún lauk stúdentsprófi úr máladeild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1949. Þá lá leiðin til Frakklands þar sem hún stundaði nám í frönsku og frönskum bókmenntum, með leikbókmenntir sem sérgrein, við háskólana í Grenoble og Sorbonne í París. Þegar heim kom lagði hún stund á ensku og frönsku við Háskóla Íslands með áherslu á leikbókmenntir. Þá stundaði hún nám í uppeldis- og kennslufræðum. Síðar nam hún leiklistarsögu við Hafnarháskóla og frönsku við háskólann í Uppsölum. Árið 1970 tók Vigdís ársleyfi frá störfum og dvaldist í Frakklandi þar sem hún kynnti sér samskipti og menningartengsl Íslendinga og Frakka á 19. öld, hinni miklu skútuöld Frakka á Íslandsmiðum.

Fjölmargar háskóla- og vísindastofnanir víðs vegar um heim hafa sæmt Vigdísi heiðursdoktorsnafnbót og öðrum nafnbótum fyrir störf sín, m.a. í Frakklandi, Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Finnlandi, Svíþjóð, Japan, Spáni og Skotlandi. 

Vigdís hefur stutt sérstaklega við hjúkrunarfræðinga og er heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga en móðir hennar var formaður Félags hjúkrunarkvenna um árabil.

Í tilefni af veitingu heiðursnafnbótarinnar verður haldið málþing undir yfirskriftinni „Vigdís Finnbogadóttir: Hin víðtæku áhrif” við Háskólann á Akureyrisama dag kl. 10 – 12 þar sem fræðimenn og vinir víða að munu fjalla um ævi og störf Vigdísar. Í framhaldi af málþinginu verður blásið til hátíðar í hátíðarsal skólans kl. 15 – 16 þar sem Vigdísi verður veitt heiðursdoktorsnafnbót.

Léttar veitingar að athöfn lokinni.

 SKRÁNING HÉR

Dagskrá

10.00 - 11.45 Málþing Vigdís Finnbogadóttir: „Hin víðtæku áhrif“ í M102

11.45 – 12.00 Eldri barnakór Akureyrarkirkju syngur í Miðborg undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur

15.00 – 16.00 Heiðursdoktorsathöfn í hátíðarsal Háskólans á Akureyri

16.00 – 17.30 Móttaka í Háskólanum á Akureyri (Miðborg)