„Hvað kom fyrir þig?" Áfallamiðuð nálgun í skólakerfinu og íþróttastarfinu

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi - Rafrænir hádegisfyrirlestrar á vegum Háskólans á Akureyri.

Þann 25. nóvember nk. hefst sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi og er það Mannréttindaskrifstofa Íslands sem stendur fyrir átakinu. Að þessu tilefni verður boðið upp á rafræna fyrirlestra á þessu tímabili. Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri vill vekja athygli á átakinu sem og þessum fyrirlestrum. 

Mánudaginn 6. desember mun Karen Nóadóttir, BA í sálfræði og M.Ed í menntunarfræðum frá HA, fara með fyrirlesturinn „Hvað kom fyrir þig?“ Áfallamiðuð nálgun í skólakerfinu og íþróttastarfinu. 

Öll velkomin!

ZOOM HLEKKUR