Hver eru áhrif styttingar vinnuvikunnar?

Vinna minna, allir vinna!

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) stendur fyrir hádegisfyrirlestri um styttingu vinnuvikunnar og áhrif hennar á jafnvægi vinnu og einkalífs.

Á fyrirlestrinum munu Arnar Þór Jóhannesson og Anna Soffía Víkingsdóttir sérfræðingar hjá RHA fjalla um áhugaverðar niðurstöður rannsóknar tilraunaverkefnis um styttingar vinnuvikunnar hjá Reykjavíkurborg og völdum ríkisstofnunum.

Arnar Þór Anna Soffía

Nemendur sem komu að rannsókninni ræða upplifun sína af henni. Jafnframt mun starfsmaður frá Þjóðskrá segja frá reynslu stofnunarinnar af styttri vinnuviku.

Öll velkomin - Aðgangur ókeypis