Kynning á Fulbright-styrkjum

Styrkir fyrir íslenska náms- og fræðimenn

Þriðjudaginn 28. ágúst mun Belinda Theriault, framkvæmdastjóri Fulbright stofnunarinnar á Íslandi koma í heimsókn og kynna Fulbright styrkina fyrir nemendum og fræðimannastyrkina fyrir kennara.

Belinda mun verða í matsal HA (Vesturborg) með kynningu fyrir:

  • starfsmenn kl. 11.30-12.00
  • nemendur kl. 12.00-12.30

Allir áhugasamir hvattir til að mæta á þessa kynningu.

Frekari upplýsingar um Fulbright er að finna á www.fulbright.is/