Örnámskeið um samræmingu einka/fjölskyldulífs og náms

Zoom námskeið

Miðstöð náms- og starfsráðgjafar mun bjóða upp á örnámskeið þriðjudaginn 7.apríl kl 10:30, þar sem farið er yfir praktísk atriði og spjall er varðar samræmingu einka/fjölskyldulífs og náms. Ef eihverntímann er þörf þá er það á “skrýtnum” tímum

Slóð á námskeiðið

Við ráðgjafarnir í Náms- og starfsráðgjöf langar einnig að deila með ykkur nokkrum ráðum sem gott er að hafa í huga.

  • Grunnþarfir, mikilvægt er eins og áður að sinna grunnþörfum s.s. svefni, góðri næringu og hreyfingu. 
  • Skipulag, hjálplegt er að ramma daginn inn og skipleggja námið (til að lenda ekki í þeim vítahring sem frestun hefur), hreyfingu og gæðastundir. 
    • Festu tímann sem er ætlaður lærdómi 
    • Lærðu við kjöraðstæður 
    • Taktu stutt hlé, þess á milli er slökkt á truflun 
    • Skilgreindu hvað á að læra 
    • Skiptu milli verkefni því fjölbreytni eykur úthald 
    • Áætlaðu tímann fyrir hvert verkefni 
    • Forgangsraða eftir mikilvægi  
  • Skólavinir, hafðu samband við þá sem eru í náminu og gefðu og fáðu pepp. 
  • Samþykktu sjálfan þig og tilfinningar þínar. Gerðu eitthvað daglega sem gleður þig eða fær þig til að líða vel. 
  • Ráðgjöf, hafðu samband við okkur í miðstöð náms- og starfsráðgjafar, við erum hér, fyrir ykkur