5. maí 2025 kl. 12:00-12:45
Velkomin á opinn kynningarfund
Öll velkomin á opinn kynningarfund Á ZOOM um námið!
Viltu hafa áhrif á líf fólks með heilabilun? Komdu á kynningarfund mánudaginn 5. maí kl. 12.
- Kristín Þórarinsdóttir, dósent við HA, kynnir námið
- Spurt & svarað
Smelltu hér til að tengjast fundinum
Um námið
Næstkomandi haust verður í annað sinn boðið upp á námsleiðina Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun innan Hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri í samstarfi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Um er að ræða framhaldsnám á meistarastigi, samtals 60 ECTS einingar, sem miðar að sérhæfingu á sviði heilabilunar.
Starfsvettvangur ráðgjafa í málefnum fólks með heilabilun er talinn víðtækur en þar á meðal eru stjórnunar og ráðgjafastörf innan heilbrigðis-og velferðarkerfisins eins og innan heilbrigðisumdæma, minnismóttaka, heilsugæslu, heimahjúkrunar, félagslegrar heimaþjónustu, dagþjálfunar og hjúkrunarheimila.
Markmið og áherslur
- Persónumiðuð, heildræn og samþætt ráðgjöf og þjónusta við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra
- Fræðsla og ráðgjöf til fagfólks, stofnana og almennings
- Þverfræðileg nálgun og samvinna milli ólíkra fagaðila
Námið er sniðið að þeim sem vilja dýpka fagþekkingu sína og styrkja stoðir heilbrigðis- og velferðarkerfisins með markvissri menntun.
Samfélagslegt mikilvægi
Þörfin fyrir sérhæfða þekkingu á sviði heilabilunar hefur aldrei verið meiri. Fjöldi fólks með heilabilun eykst hratt og með því einnig þörfin fyrir sérmenntað fagfólk. Námið er mótað í takt við stefnumótun stjórnvalda og aðgerðaráætlanir á sviði heilabilunarmála og styður við þróun þjónustu við þennan hóp í samfélaginu.
Viltu vita meira?
Við hlökkum til að sjá þig!