Sterkari saman – farsælt samstarf heimila og skóla

Vorráðstefna Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri

Árleg vorráðstefna Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri um menntavísindi verður haldin þann 14. apríl. Þema ráðstefnunnar er samstarf heimila og skóla.  

Samkvæmt gildandi lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla ber skólum að stuðla að samstarfi milli heimila og skóla með líðan og velferð barna og ungmenna að leiðarljósi. Samstarf heimila og skóla er útfært með ýmsum hætti á öllum skólastigum.

Á ráðstefnunni verður lögð sérstök áhersla á umfjöllun um það sem vel hefur gefist í samstarfinu. Ráðstefnan er ætluð skólafólki, foreldrum og öðrum þeim sem áhuga hafa á þessu mikilvæga málefni.

Sérstök athygli er vakin á því að efni ráðstefnunnar varðar samstarf heimila og skóla á öllum skólastigum þ.e. á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar

  • Ingibjörg Auðunsdóttir, fyrrum sérfræðingur hjá MSHA
  • Hermína Gunnþórsdóttir, dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri
  • Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri og fulltrúar úr Oddeyrarskóla
  • Bryndís Jónsdóttir, verkefnastjóri Heimila og skóla

Auk aðalfyrirlestra verða málstofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að því sem vel hefur gefist í samstarfi heimila og skóla. Hver málstofa er 30 mínútur og innan þess tíma er gert ráð fyrir umræðum/fyrirspurnum.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á vef MSHA.