„Þetta er afleiðing af einhverju öðru“ - Reynsla karla af ofbeldi og fíknivanda.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi - Rafrænir hádegisfyrirlestrar á vegum Háskólans á Akureyri.

Þann 25. nóvember nk. hefst sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi og er það Mannréttindaskrifstofa Íslands sem stendur fyrir átakinu. Að þessu tilefni verður boðið upp á rafræna fyrirlestra á þessu tímabili. Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri vill vekja athygli á átakinu sem og þessum fyrirlestrum. 

Þriðjudaginn 30. nóvember mun Margrét Tórshamar, MSc í heilbrigðisvísindi frá HA og meistaranemi í klínískri sálfræði í HR, fara með fyrirlesturinn „Þetta er afleiðing af einhverju öðru“ - Reynsla karla af ofbeldi og fíknivanda. 

Öll velkomin!

ZOOM HLEKKUR