Vísindaskóli unga fólksins

Vísindaskólinn í fullu fjöri!

Vísindaskóli unga fólksins er fyrir áhugasöm og fróðleiksfús ungmenni á aldrinum 11-13 ára (fædd árin 2009, 2010, 2011). Markmið Vísindaskólans er að bjóða aldurshópnum 11-13 ára upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu. Þar fá ungmennin að kynnast fimm þemum, einu þema á hverjum degi, sem endurspegla  fjölbreytt námsframboð Háskólans á Akureyri.

 

Vísindaskólinn stendur frá kl. 9:00 – 15:00, dagana 20.-24. júní 2022. Nemendum verður skipt upp í fimm hópa. Allir hóparnir fara í gegnum fimm þemu, eitt þema á dag.

Nánari upplýsingar veitir Anna Soffía Víkingsdóttir, verkefnastjóri Vísindaskólans; annasoffia@unak.is eða í síma 460-8907. Skólastjóri Vísindaskólans er Sigrún Stefánsdóttir og er hægt að ná á henni í síma 861-4499.