Vísindaskóli unga fólksins

Skólinn verður nú haldinn í sjöunda sinn!

Vísindaskólinn er fyrir ungmenni á aldrinum 11-13 ára (fædd árin árin 2008, 2009, 2010). Markmið Vísindaskólans er að bjóða upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu. Þar fá ungmennin að kynnast fimm þemum, einu þema á hverjum degi, sem endurspegla fjölbreytt námsframboð Háskólans á Akureyri. 

Nú eru ný þemu og nýjar áherslur. Eftirfarandi þemu verða kennd: 

Af hverju kom gos á Reykjanesi?
Ísland er ungt land með jarðskjálftum, eldgosum og heitum reit. Nemendur fræðast um hvernig land verður til. Hvað eru flekaskil og hvað er svona merkilegt við stuðlaberg? Er grjót bara grjót? Dettur landið í tvo parta í framtíðinni?

Lengi lifi Ísland
Ísland hefur verið lýðveldi síðan árið 1944. Hvað er lýðræði og er skemmtilegt að vera forseti? Hvað gerir fólkið í Alþingishúsinu? Af hverju er fáninn okkar hvítur, rauður og blár og af hverju skiptir máli að við pössum tungumálið okkar? Stjórnarskrá, hvað gagn gerir hún?

Björgunarsveitarstörf, býflugur og blómin
Kunna krakkar í dag að bjarga sér úti í náttúrunni? Get ég kveikt eld ef ég á ekki eldspýtur? Hvernig bjargar maður sér í vondu veðri? Eru kóngulær hættulegar? Lifa báðir helmingarnir ef ánamaðkur er skorinn í tvennt? Má borða blóm?

Sem betur fer erum við ekki öll eins
Hvernig er að vera með ADHD eða túrett? Hvern eigum við að spyrja um hvernig það er að vera greindur? Er vont að vera með eitt brjóst eða stóma? Passar fótbolti fyrir alla? Ef ekki - hvað er þá í boði?

Er orkan endalaus?
Er til endalaus orka og hvaðan kemur hún? Hvernig er orkunni dreift? Hvað eru gagnaver? Hvað verður um matinn sem við klárum ekki? Hvernig mælum við matar-, orku- og fatasóun?

Skráning í Vísindaskólann og frekari upplýsingar má finna á síðu Vísindaskólans.