Hver á söguna og hver hefur rétt til að varðveita hana? Þessar spurningar eru meðal viðfangsefna nýrrar bókar, International Law and Displaced Archives in Arctic Countries, sem verður kynnt við Háskólann á Akureyri föstudaginn 30. október.
Bókin fjallar um hvernig skjalasöfn móta skilning okkar á sögu Norðurslóða og íbúa svæðisins. Meðal annars er fjallað um hver hefur yfirráð yfir sögulegum heimildum, hvernig þær móta sameiginlegar minningar og hvaða réttindi frumbyggjar hafa til aðgangs að gögnum um eigin sögu. Dæmi eru tekin frá Íslandi, Kanada, Grænlandi og Sápmi.
Ritstjórar bókarinnar eru Rachael Lorna Johnstone og James Lowry, prófessor við City University of New York.
Á bókakynningunni munu ritstjórar og höfundar kynna bókina og fjalla um hvers vegna skjalasöfn frá nýlendutímanum skipta enn máli fyrir skilning okkar á Norðurslóðum í dag.
Þátttakendur
- Rachael Lorna Johnstone
- James Lowry
- Romain Chuffart
- Melis Yuksel
- Njörður Sigurðsson
- Bjarni Már Magnússon
- Rebecca Bourgeois
- Apostolos Tsiouvalas
- Giorgio Baruchello
Fundarstjóri: Tom Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs
Skráning og þátttaka
- Bókakynningin er öllum opin og er aðgangur ókeypis
- Boðið verður upp á léttar veitingar
- Að kynningu lokinni gefst gestum tækifæri til að spjalla við höfunda og aðra þátttakendur
- Streymt verður frá kynningunni hér á Zoom
- Þátttakendur á staðnum eru beðnir um að skrá þátttöku sína
Um bókina
Bókin International Law and Displaced Archives in Arctic Countries er aðgengileg öllum í opnum aðgangi á vef útgefandans Brill. Þar er einnig hægt að panta prentað eintak.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar um viðburðinn veitir Rachael Lorna Johnstone, rlj@unak.is
Öll velkomin!