<span class="month"> 4</span>des. <span class="time">kl. 10:00-14:00</span>
Unnur Magnúsdóttir ver doktorsritgerð sína

Föstudaginn 4. desember mun Unnur Magnúsdóttir verja doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Doktorsritgerðin ber heitið: Bindilsértækni YKL-40 og stjórnun í utanfrumuefni.

  • Ritgerðin verður aðgengileg hér [hlekkur kemur von bráðar]
  • Vörnin fer fram á ensku í Hátíðarsal HA kl. 10.00 og er öllum opin
  • Vinsamlegast tilkynnið mætingu í Hátíðarsal hér
  • Vörninni verður einnig streymt hér [hlekkur kemur]

Doktorsverkefnið var unnið undir leiðsögn Dr. Finnboga Rúts Þormóðssonar, prófessors emeritus í taugalíffræði og frumulíffræði við Hjúkrunarfræðideild Háskólann á Akureyri. Meðleiðbeinendur voru Dr. Jens Guðmundur Hjörleifsson, dósent í lífefnafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, Dr. Jón Magnús Einarsson, fyrrv. sérfræðingur í líffræði og líftækni hjá Genís á Siglufirði, Dr. Eva Charlotte Halapi, dósent í ónæmisfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri. Saman skipuðu þau doktorsnefndina.

Andmælendur Dr. Julia Sidenius Johansen, klínískur prófessor í klínískri læknisfræði og klínískum krabbameinslækningum við Kaupmannahafnarháskóla og Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, prófessor í heilbrigðisverkfræði og sviðsforseti við Háskólann í Reykjavík.  

Dr. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, sviðsstjóri Rannsókna- og doktorsnáms og Dr. Hafdís Skúladóttir, staðgengill forseta Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs, munu stýra athöfninni. 

Um doktorsefnið

Unnur Magnúsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr nú á Siglufirði. Hún lauk BSc gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2012. Í grunnnámi sínu vaknaði áhugi hennar á byggingu og eiginleikum próteina og hlutverki þeirra í sjúkdómum í mönnum. Í kjölfarið lauk Unnur MSc gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2015 í samstarfi við líftæknifyrirtækið Genís.

Hjá Genís kynntist Unnur iðnaðarlíftækni, nýtingu próteina og ensíma í iðnaði og mikilvægi sérhæfðrar vísindalegrar þekkingar við þróun líftæknilausna. Á árunum 2015-2021 starfaði hún innan rannsóknar- og þróunardeildar Genís og sótti námskeið í stjórnun og verkefnastjórnun.
Árið 2021 hóf Unnur doktorsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri í samstarfi við Genís. Í doktorsnámi sínu rannsakaði hún bindieiginleika og stjórnun YKL-40, próteins í mönnum sem hefur verið tengt við bólguferla, örvefsmyndun og framgang krabbameina. Megináhersla rannsóknanna var á samspil YKL-40 við ólíkar sykrur og hvernig bygging þeirra og efnafræðilegir eiginleikar hafa áhrif á bindieiginleika próteinsins. Jafnframt fjallaði hún um hvernig breytingar á utanfrumuefni líkamans í sjúkdómum gætu haft áhrif á bindingu og líffræðilega virkni YKL-40.

Í doktorsnámi sínu vann Unnur meðal annars að rannsóknum við Háskóla Íslands, hjá Íslenskri erfðagreiningu og í samstarfi við MAX IV-rannsóknarstöðina í Svíþjóð, þar sem hún nýtti sérhæfðan tækjabúnað til rannsókna á bindisækni og byggingu próteina.
Silla Páls tók myndina af Unni

Ágrip

YKL-40 er kítínasa-líkt prótein sem hefur verið tengt við bólguferla, endurmótun vefja, örvefsmyndun, æðanýmyndun og krabbamein í mönnum. Þrátt fyrir að próteinið hafi ekki ensímvirkni kítínasa getur það bundist ýmsum sykrum og viðtökum á yfirborði frumna. Enn er þó takmarkaður skilningur á bindieiginleikum próteinsins og hvernig þeim er stýrt. Markmið doktorsverkefnisins var að rannsaka bindilsértækni YKL-40 og samspil þess við bindla í utanfrumuefni líkamans.

Niðurstöður rannsóknanna sýndu að binding kítínfásykra við YKL-40 dregur úr bindingu próteinsins við heparín, sem bendir til allósterískrar stjórnunar á bindieiginleikum þess. Tvær sykrur í utanfrumuefni, dermatan súlfat og hýalúrónan, voru einnig auðkenndar sem nýjir bindlar YKL-40. Samanburður á ólíkum glýkósamínóglýkönum benti til þess að keðjulengd, súlfun og samsetning úrónsýra séu mikilvægir þættir í bindilsértækni próteinsins. Byggingargreiningar og sameindalíkön gáfu einnig frekari vísbendingar um staðsetningu bindisets heparíns og dermatan súlfats á YKL-40.

Niðurstöðurnar benda til þess að samsetning og bygging sykra í utanfrumuefni geti haft áhrif á bindieiginleika YKL-40. Verkefnið eykur þannig skilning á bindieiginleikum próteinsins og leggur grunn að frekari rannsóknum á því hvernig endurmótun utanfrumuefnis getur haft áhrif á staðsetningu og líffræðilega virkni YKL-40 í heilbrigðum vefjum og við sjúkdóma.

Öll velkomin!