Frá fjölmiðlum til fræða — Málþing til heiðurs birgi guðmundssyni
Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri stendur fyrir málþingi til heiðurs Birgi Guðmundssyni, prófessor emeritus, föstudaginn 6. nóvember.
Tilefni málþingsins er sjötugsafmæli Birgis en um leið verður sjónum beint að merkum tímamótum í sögu íslenskra fjölmiðla. Árið 2026 eru 100 ár liðin frá stofnun fyrstu útvarpsstöðvarinnar á Íslandi, 60 ár frá fyrstu sjónvarpsútsendingu RÚV og 40 ár frá því að Bylgjan fór í loftið.
Birgir hefur um árabil starfað við kennslu og rannsóknir við Háskólann á Akureyri, meðal annars á sviði fjölmiðla, stjórnmála og samfélags. Á málþinginu verður ferill hans og framlag til fræðasamfélagsins heiðrað um leið og litið verður yfir þróun íslenskra fjölmiðla og þær breytingar sem orðið hafa á fjölmiðlaumhverfinu.
Skráning
Þátttakendur eru beðnir að skrá sig hér
Dagskrá
Dagskrá málþingsins verður birt hér fljótlega
Öll velkomin!