Velkomin á framtíðardaga 2026!
Nemendaráðgjöf og SHA bjóða á opinn fyrirlestur í tilefni Framtíðardaga.
Markmið viðburðarins er að stúdentar fái innsýn í fjölbreytt tækifæri sem tengjast námi, alþjóðlegri reynslu og frekari menntun. Þrír fyrirlesarar munu segja frá eigin reynslu og kynna leiðir sem geta opnað dyr í námi og/eða starfi.
- Viðburðurinn fer fram í stofu M102
- Boðið verður upp á veitingar og til að áætla magn biðjum við ykkur um að skrá þátttöku hér
- Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður stúdentum en starfsfólk og aðrir áhugasamir eru að sjálfsögðu velkomin
Dagskrá
Alma Stefánsdóttir: Frá falli til frama – vegferð í orkugeiranum

Alma Stefánsdóttir er 30 ára Akureyringur í húð og hár en nú búsett á Kársnesinu. Eftir útskrift frá Menntaskólanum á Akureyri hóf hún nám við Háskóla Íslands þar sem hún lauk BSc í efnaverkfræði, meðal annars með skiptinámi við Lunds háskóla (LTH) í Svíþjóð. Hún lauk síðan MSc námi í umhverfisverkfræði við Danska tækniháskólann (DTU) í Kaupmannahöfn árið 2020, þar sem meistaraverkefni hennar fjallaði um gasflæðimælingar frá Kröflustöð.
Í dag starfar Alma sem sérfræðingur í vinnslutækni jarðvarmavirkjana á deild þróunar og auðlinda jarðvarma hjá Landsvirkjun. Þar stýrir hún verkefnum sem snúa að þróun vinnslutækni í núverandi og nýjum jarðvarmastöðvum á Norðausturlandi, með áherslu á endurniðurdælingu jarðhita, vöktun auðlindarinnar og fjölnýtingu jarðvarma.
Alma hefur áður starfað hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Eim, birt vísindagreinar um þróunarverkefni sín og kynnt þær á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars á Heimsþingi jarðhita í Kína árið 2024 og mun kynna aftur á heimsþinginu í Kanada árið 2026.
Hún hefur setið í stjórn Ungra athafnakvenna síðastliðin tvö ár og er virkur þátttakandi í starfi Kvenna í Orkumálum. Alma brennur fyrir valdeflingu kvenna og telur mikilvægt að jafna stöðu kynjanna í ólíkum atvinnugeirum til að stuðla að framþróun í samfélaginu.
Í erindinu segir Alma frá ævintýrum og áskorunum á námsferli sínum og fjallar um þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða í orkugeiranum.
Hildur Friðriksdóttir: Alþjóðleg tækifæri í námi og starfsþjálfun

Hildur Friðriksdóttir alþjóðafulltrúi á Miðstöð alþjóðasamskipta HA mun fjalla um helstu tækifæri sem standa stúdentum Háskólans á Akureyri til boða í skiptinámi og starfsnámi erlendis. Hún kynnir einnig þá styrkjamöguleika sem nemendur geta nýtt sér og fer yfir hvernig alþjóðleg náms- og starfsreynsla getur styrkt bæði nám og framtíðarstarfsmöguleika.
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir: Er doktorsnám fyrir mig?

Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna mun fjalla um doktorsnám við Háskólann á Akureyri. Hún fer yfir hvernig undirbúningur fyrir doktorsnám fer fram, hvernig umsóknar- og námsferlið lítur út og hvaða tækifæri doktorsnám getur veitt þeim sem vilja dýpka þekkingu sína og taka þátt í rannsóknum og nýsköpun.
Öll velkomin!