5. nóvember 2026 kl. 11:00-13:00
Kynntu þér námsúrvalið við HA frá fyrstu hendi!
öll velkomin í háskólann á akureyri fimmtudaginn 5. nóvember!
Stúdentar og starfsfólk HA svara öllum þínum spurningum um námið og lífið í HA.
- Hvaða nám er í boði?
- Hvaða möguleikar eru að námi loknu?
- Hvernig er félagslífið?
- Hvað get ég gert með gráðu frá HA?
- Hvaða tækifæri felast í skiptinámi?
Allar námsleiðir í grunnnámi verða kynntar á sérstökum básum og áhugasöm geta tekið þátt í gönguferð til að kynnast háskólasvæðinu.
Að dagskrá lokinni verður boðið til pizzuveislu.

Við hlökkum til að sjá þig!