28. febrúar 2026 kl. 12:00-15:00
Háskólinn á Akureyri kynnir námsframboð sitt í HR og Sögu

Háskóladagurinn 2026 fer fram laugardaginn 28. febrúar

Stúdentar og starfsfólk HA taka vel á móti þér á Háskóladaginn. Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er á Íslandi. Hér má nálgast nánari upplýsingar um Háskóladaginn.

Sjáumst í Háskólanum í Reykjavík og í Sögu kl. 12-15

  • HA-ingar taka vel á móti þér í Háskólanum í Reykjavík þar sem kynnt verður allt grunnnám HA 
  • Í Sögu getur þú kynnt þér hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði, kennarafræði, sjávarútvegsfræði og líftækni

Hvað vilt þú verða?

Hér á vefnum getur þú kynnt þér allt grunnám við HA og fengið upplýsingar um námið og möguleika að námi loknu. Í HA er einnig að finna einstakar námsleiðir sem þú finnur hvergi annars staðar. 

Við hlökkum til að sjá þig!