Brautskráning kandídata úr framhaldsnámi
Háskólahátíð fer fram í Háskólanum á Akureyri 14.-15. júní 2024.
Föstudaginn 14. júní verða brautskráðir kandídatar úr diplómanámi á framhaldsstigi og meistaranámi.
Helstu tímasetningar
Föstudagur 14. júní
15:00-15:30 Stutt æfing í Hátíðarsal
15:30-15:50 Hópmyndataka
16:00-17:00 Brautskráningarathöfn úr framhaldsnámi í Hátíðarsal
17:00-17:30 Móttaka með kaffi og sætum bita
Skráning
Kandídatar, starfsfólk og aðrir boðsgestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá mætingu. Athugið að hver kandídat má koma með tvo boðsgesti á athöfnina.
- Skráning kandídata í framhaldsnámi
- Starfsfólk og aðrir boðsgestir (í vinnslu)
Gott að hafa í huga
- Ljósmyndari tekur stemmningsmyndir úr athöfninni og verða myndirnar aðgengilegar á Flickr-síðu HA að kostnaðarlausu
- Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðu Háskólans á Akureyri og upptaka síðan aðgengileg á YouTube rás háskólans
- Ljósmyndakassi verður á svæðinu.
- Það væri gaman að taka þátt í deginum með ykkur undir merkinu #háskólahátíð og @haskolinnaakureyri
Það er komið að tímamótum, við hlökkum til að sjá þig!