Ráðstefnan Löggæsla og samfélagið verður haldin í níunda sinn við Háskólann á Akureyri miðvikudaginn 30. september og fimmtudaginn 1. október, 2026. Það er Rannsóknasetur í lögreglufræði við HA sem heldur ráðstefnuna og þema hennar í ár er afbrot ungmenna.
Dagskrá
Dagskrá verður birt hér von bráðar
Lykilfyrirlesarar
Caroline Lanskey

Caroline Lanskey er dósent í afbrotafræði og sakfræði við Institute of Criminology við Cambridge háskóla og forstöðumaður Justice and Society Research Centre. Rannsóknir hennar byggja á þverfaglegri sérþekkingu hennar á afbrotafræði, menntunarfræðum (félagsfræði og heimspeki) og málnotkun og beinast að mannlegum og félagslegum þáttum tengdum aðkomu að réttarvörslukerfinu, með sérstakri áherslu á jaðarsetningu og inngildingu. Hún hefur sérþekkingu á eigindlegum og megindlegum rannsóknaraðferðum og hefur stýrt og verið meðstjórnandi fjölmargra rannsóknarverkefna með ungu fólki sem hefur komist í kast við réttarkerfið eða á í hættu á Slíku. Í nýlegum rannsóknum sínum hefur hún rannsakað jafnræði í ákvarðanatöku innan réttarkerfisins í málefnum ungmenna, þar á meðal hlutverk lögreglu og samspil við aðrar stofnanir sem starfa að málefnum ungmenna innan réttarkerfisins og tengdra kerfa, svo sem velferðar- og menntakerfisins.
Markus Kaakinen

Markus Kaakinen er dósent í refsistefnu (e. Criminal Policy) við Institute of Criminology and Legal Policy við Háskólann í Helsinki. Rannsóknir hans beinast að afbrotum ungmenna, áhættuhegðun og afbrotavörnum. Hann hefur birt fjölda fræðigreina á þessum rannsóknasviðum og stýrt mörgum rannsóknarverkefnum sem tengjast þeim.
Skráning
Ráðstefnugjald er 10.500 krónur á mann og eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar innifaldar. Þátttakendur greiða sjálfir ferðakostnað, gistingu og mat. Háskólastúdentar frá frítt á ráðstefnuna.
Kall eftir ágripum
Kallað er eftir ágripum erinda fyrir 9. Löggæsla og samfélagið ráðstefnuna. Ráðstefnan er vettvangur þar sem fagfólk og fræðimenn reifa málefni löggæslu í víðri merkingu. Einstaklingar og hópar sem starfa á fræða- og/eða fagsviðum sem snerta löggæslu eru hvattir til þess að senda inn ágrip af erindum sem byggja á eigin rannsóknum og/eða starfi.
Lykilfyrirlesarar endurspegla þema ráðstefnunnar sem í ár er afbrot ungmenna (e. youth crime). Afbrotatíðni eykst hratt á unglingsárum og nær að jafnaði hámarki á seint á unglingsaldri eða snemma á fullorðinsaldri. Mikilvægt er að skilja einkenni, umfang og helstu áhrifaþætti afbrota ungmenna svo bregðast megi rétt við og stemma stigu við frekari brotum. Lykilfyrirlesarar verða kynntir síðar.
Að gefnu tilefni óskum við sérstaklega eftir erindum sem lúta að afbrotum ungmenna en öll erindi sem snúa að löggæslu eru meira en velkomin. Sem fyrr segir er ráðstefnan hugsuð sem sameiginlegur vettvangur fyrir fræða- og fagfólk til þess að koma rannsóknum sínum og reynslu af löggæslu hérlendis sem erlendis á framfæri og deila með leikum sem lærðum.
ágrip skulu berast eigi síðar en 15. ágúst, 2026
Gagnlegar upplýsingar
- Ráðstefnan fer fram í Miðborg Háskólans á Akureyri. Ráðstefnan hefst stundvíslega kl. 9:00 þrítugasta september og lýkur kl. 13:00 fyrsta október.
- Almenn erindi og fyrirspurnir í kjölfarið skulu samtals ekki taka ekki lengri tíma en 25 mínútur. Ágrip af erindum (hámark 250 orð) skulu berast eigi síðar en 15. ágúst, 2026. Ágripin skal senda á Guðmund Oddsson, prófessor í félagsfræði við HA og (goddsson@unak.is).
- Ráðstefnugjald er 10.500 krónur á mann og eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar innifaldar. Þátttakendur greiða sjálfir ferðakostnað, gistingu og mat. Háskólastúdentar frá frítt á ráðstefnuna.
- Ráðstefnukvöldverður verður að kvöldi miðvikudagsins 30. september.
- Flugfélagið Icelandair flýgur til Akureyrar, sjá flugáætlun á www.icelandair.is
- Facebook viðburður
Nánari upplýsingar
Hafið samband við Guðmund Oddsson, prófessor í félagsfræði við HA, goddsson@unak.is eða í síma 460 8677 vanti frekari upplýsingar.