2. október 2026 kl. 14:00-16:00
Fjórir meistaranemar í heilbrigðisvísindum kynna meistaraverkefni sín

Öll velkomin á opna málstofu meistaranema í heilbrigðisvísindum!

Föstudaginn 2. október munu fjórir meistaranemar í heilbrigðisvísindum kynna lokaverkefni sín á opinni málstofu.

Málstofan er öllum opin og hvetjum við áhugasöm til að mæta og taka þátt í umræðunni.

  • Málstofan fer fram í stofu M102 og verður einnig streymt frá henni hér á Zoom

Meistaranemarnir sem kynna verkefni sín:

Íris Ósk Guðmundsdóttir | kl. 14.00

Tengsl þols við líkamsímynd, sjálfsálit og einmanaleika hjá 36 ára einstaklingum. Heilsuferðalagið - Langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988

Leiðbeinandi: Nanna Ýr Arnardóttir
Meðleiðbeinandi: Guðrún Sunna Gestsdóttir

Sigríður Barbara Garðarsdóttir | kl. 14.30

Gefandi og lærdómsríkt starf en jafnframt krefjandi. Reynsla ófaglærðs starfsfólks af umönnun aldraðra á hjúkrunarheimilum og áhrif starfsins á sál-félagslega og líkamlega líðan

Leiðbeinandi: Kristín Þórarinsdóttir
Meðleiðbeinandi: Olga Ásrún Stefánsdóttir

Sigríður Líf Einarsdóttir | kl. 15.00

„...það er ekki bara kulnun af vinnu heldur kulnun af lífinu...”. Upplifun stjórnenda á heilsugæslu af kulnun starfsfólks og viðbrögðum við henni

Leiðbeinandi: Hjördís Sigursteinsdóttir

Thelma Rós Sigurðardóttir | kl. 15.30

Frá æsku til fullorðinsára. Tengsl sálrænna áfalla í æsku og lífshátta á fullorðinsárum

Leiðbeinandi: Þorbjörg Jónsdóttir
Meðleiðbeinandi: Guðmundur Kristján Óskarsson

Öll velkomin!