8.-10. apríl 2027
Vertu með á Vorráðstefnu Miðstöðvar skólaþróunar og Kennaradeildar HA í samstarfi við NNFF þar sem rætt verður um mörk, flæði og framtíð kennslu móðurmáls og annarra tungumála.

Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku.

Við bjóðum fræðafólk, doktorsnema, kennara af öllum skólastigum og annað fagfólk hjartanlega velkomið til að ræða nýjustu þekkingu í kennslu fyrsta og annars máls. Ráðstefnan er vettvangur fræðilegrar umræðu, miðlunar hugmynda og samstarfs þvert á tungumála-, menningar- og landfræðileg landamæri.

Um ráðstefnuna

Yfirskrift ráðstefnunnar er Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir.

Við lifum á miklum umbreytingatímum þar sem hreyfanleiki fólks milli svæða og landa eykst stöðugt. Mörk milli þjóða, menningarheima og tungumála færast sífellt til og verða á ýmsan hátt óljósari. Þessi þróun hefur bæði í för með sér áskoranir og tækifæri fyrir kennslufræði móðurmáls, einkum í tengslum við kennslu annars máls.

Ráðstefnan hvetur til ígrundunar um spurningar á borð við:

  • Hvert er gildi móðurmálskennslu í þessum breytilega heimi?
  • Hvernig getur kennsla í móðurmáli stutt við — og notið stuðnings af — kennslu annars máls?
  • Hver eru markmið með móðurmálskennslu við núverandi aðstæður?
  • Hvaða sjónarhorn, kenningar og nálganir eru líklegastar til að hjálpa til við að ná þessum markmiðum?
  • Hvernig upplifa nemendur móðurmál sitt og hlutverk þess meðal annarra tungumála í samfélaginu?

Forráðstefna fyrir doktorsnema 8. apríl 2027 kl. 08.30–14.00

Í tengslum við ráðstefnuna verður haldin forráðstefna fyrir doktorsnema þann 8. apríl 2027.

Nánari upplýsingar um forráðstefnuna má finna hér.

Doktorsnemar kynna verk í vinnslu til umræðu og skila jafnframt ítarlegum texta þegar nær dregur (3–5 bls., að frátöldum heimildaskrám).

Textinn getur fjallað um sjálfvalda þætti doktorsverkefnisins, svo sem fræðilegan grunn, aðferðafræði, tilteknar niðurstöður eða önnur álitaefni. Í textanum skulu fylgja stuttar leiðbeiningar fyrir lesendur þar sem fram kemur hvaða atriði höfundur óskar sérstaklega eftir endurgjöf á.

Textana má skrifa á sænsku, norsku, dönsku eða ensku.

Doktorsnemum verður skipt í hópa þar sem þeir kynna verkefni sín, lesa texta og veita endurgjöf. Þátttakendur fá jafnframt endurgjöf frá reyndum fræðimönnum.

Textum skal skila eigi síðar en 1. mars 2027, eða einum mánuði fyrir forráðstefnuna. Textarnir verða sendir til hópanna tveimur vikum fyrir ráðstefnuna.

  • Hér opnar fyrir innsendingu texta þegar nær dregur

Upplýsingar um staðsetningu og endanlega dagskrá verða birtar síðar.

Skráning á forráðstefnuna opnar samhliða skráningu á aðalráðstefnuna:

  • 1. nóvember 2026 (snemmskráning)
  • 1. janúar 2027 (almenn skráning)

Við skráningu eru þátttakendur beðnir um að skrá vinnuheiti á kynningu sinni.

Aðalfyrirlesarar

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni eru:

Anna-Elisabeth Holm,

PhD. Lektor í færeysku sem öðru máli við deild færeyskrar tungu og bókmennta. 

Rannsóknarsvið: Máltaka annars máls, fjöltyngd menntun og tungumálanám nýrra íbúa í Færeyjum. Félagsmálvísindi, með sérstaka áherslu á tungumál í samfélaginu, tungumálanám, tungumál og félagslegt réttlæti, fjöltyngd kennslufræði, fjöltyngi á jaðarsvæðum, ásamt málstefnu og málnotkun.

Stutt æviágrip: Elisabeth hefur bakgrunn í málvísindum og starfaði sem tungumálakennari. Hún hefur sérstakan áhuga á máltöku annars máls, fjöltyngdri menntun og tungumálakennslu fyrir nýbúa í Færeyjum. Helstu rannsóknir hennar eru á sviði félagsmálvísinda. Þar einbeitir hún sér að tungumálinu í samfélaginu, tungumálanámi, félagslegu réttlæti, fjöltyngdri kennslufræði og málstefnu.

Doktorsritgerð hennar fjallaði um tungumálanám fullorðinna innflytjenda. Sjónum var sérstaklega beint að reynslu innflytjenda af því að læra færeysku, ef þeir voru af öðrum uppruna en norrænum. Einnig var fjallað um þær áskoranir sem mæta fólki við að læra færeyskuna og áhrif þess á þátttöku á vinnumarkaði. Hluti þessa verks var síðar gefinn út hjá forlaginu Routledge í bókinni Migration, Adult Language Learning and Multilingualism – Critical Sociolinguistics Research with New Speakers of Faroese. Bókin hlaut bókaverðlaun BAAL árið 2025.

Line Krogager Andersen,

PhD, Rannsakandi við Háskólann í Aarhus, deild samskipta og menningar.

Rannsóknasvið: Tungumálanám, málvitund, fjöltyngi, starfendarannsóknir og flókin og kvik kerfi.

Stutt æviágrip: Line lauk fyrst námi í málvísindum og meistaranámi í ráðstefnutúlkun en hefur síðanbeint sjónum að rannsóknum á tungumálum á ferli sínum. Hún starfaði fyrst sem ráðstefnutúlkur hjá stofnunum Evrópusambandsins en sneri sér síðan aftur að akademíunni og lauk doktorsprófi með ritgerð um fjöltyngdar nálganir og málvitund í grunnskólum.

Starf hennar nær til allra tungumálagreina, þar á meðal dönsku sem móðurmáls sem hún telur mikilvægan vettvang til að efla málvitund allra nemenda. Line vinnur við starfendarannsóknir og nýtir kenningar um flókin og kvik kerfi til að skilja flókna fleti tungumálakennslu í grunnskólum. Núverandi áhersla hennar er á sjálfbæra tungumálakennslu til að mæta þeim áskorunum sem tungumálanám stendur frammi fyrir í Danmörku. Hún stýrir rannsóknarverkefninu Sustainable Language Education, sem styrkt er af danska rannsóknaráðinu.

Brynhildur Þórarinsdóttir,

Rithöfundur og dósent í íslensku við kennaradeild Háskólans á Akureyri.

Rannsóknarsvið: Barnabókmenntir, læsisuppeldi og lestrarvenjur barna og ungmenna.

Stutt æviágrip: Brynhildur er menntuð í íslenskum bókmenntum og málvísindum. Hún starfar sem rithöfundur og háskólakennari við Háskólann á Akureyri. Rannsóknir hennar hafa meðal annars beinst að lestrarvenjum barna og unglinga, íslensku sem námsgrein og kennslumáli, og notkun barnabóka í leikskólum.

Hún hefur skrifað um læsi í félagslegu samhengi, uppbyggingu lestrarsamfélaga í skólum og hlutverk bókmennta við að skapa tengsl og tilheyra. Brynhildur hefur endursagt íslenskar miðaldabókmenntir fyrir unga lesendur. Hún hefur einnig gefið út fjölda skáldsagna fyrir börn og unglinga, kennslubækur fyrir grunnskóla og handbækur fyrir kennara. Hún kennir verðandi kennurum að nýta bókmenntir í skólastarfi og hefur veitt Barnabókasetri forystu, en það vinnur að því að efla lestraráhuga barna og ungmenna á Íslandi.


Þær munu flytja erindi sín á ensku.

Dagskrá

Fimmtudagur 8. apríl

Fyrir hádegi hefst forráðstefna fyrir doktorsnema. Ráðstefnan hefst svo kl. 14:30 og dagskrá dagsins lýkur á tónlist og léttum veitingum.

Forráðstefna fyrir doktorsnema

08.30 – 09.00 | Skráning/kaffisopi 

09.00 – 09.30 | Innlegg

09.30 – 10.30 | Vinnusmiðja

10.30 – 10.45 | Kaffi

10.45 – 12.15 | Vinnusmiðja

12.15 – 13.00 | Matur fyrir doktorsnema

13.00 - 14.00 | Umræður og samantekt

 

Móðurmál og önnur mál

14.30              | Setning ráðstefnu

14.45 – 15.30 | Aðalerindi -  Brynhildur Þórarinsdóttir

15.30 – 15.45 | Kaffi

15.45 – 17.15  | Málstofur

 17.30 – 18.30 | Tónlist og léttar veitingar

Föstudagur 9. apríl

Dagurinn hefst á kaffisopa kl. 8:30 og endar á skemmtilegri óvissuferð.

08.30 09.00 | Kaffisopi 

09.00 – 09.50 | Aðalerindi - Line Krogager Andersen

10.00 – 11.30 | Málstofur - vinnustofur

11.30 – 12.30 | Matur

12.30 – 13.15 | Aðalerindi - Anna-Elisabeth Holm

13.20 14.50 | Málstofur - Vinnustofur

14.50 – 15.15 | Kaffi

15.15 – 16.15 | Málstofur

16.45 – 22.00 | Óvissuferð

Laugardagur 10. apríl

Dagurinn hefst á kaffisopa kl. 8.30 og lýkur á ráðstefnuslitum kl. 15.30

08.30 – 09.00 | Kaffisopi 

09.00 – 09.30 | Kynning frá TALÍS (Talking and learning Icelandic in schools)

09.35 – 11.05 | Málstofur

11.10 – 12.10 | Samtal við og milli aðalfyrirlesara og þátttakenda

12.10 – 13.10 | Matur

13.10 – 14.40 | Málstofur

14.45 – 15.00 | Kynning frá NNFF

15.00 - 15.30 | Ráðstefnuslit

 

Málstofukall

Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar.

Einkum er leitað eftir:

  • Kynningu á árangursríkum leiðum, aðferðum og verkfærum
  • Kynningu á vel heppnuðum þróunarverkefnum
  • Kynningu á nýlegum íslenskum og erlendum rannsóknum
  • Efni sem bíður upp á virka þátttöku gesta

Mikilvægar dagsetningar

  • Móttaka ágripa hefst: 1. september 2026
  • Skilafrestur: 30. október 2026
  • Tilkynning um samþykki: 8. janúar 2027

Leiðbeiningar fyrir málstofu

Ágrip (um það bil 300 orð, fyrir utan heimildir) skulu innihalda:

Markmið

- Rannsóknarspurningar

- Fræðilegan grunn

- Aðferð

- Fyrirliggjandi / bráðabirgðaniðurstöður

Vinsamlegast látið einnig fylgja allt að fimm lykilorð.

Lengd erindis: 20 mínútur + 10 mínútur til umræðu

Leiðbeiningar fyrir samsettar málstofur

Þegar málstofa er lögð fram skal skila:

- Yfirlitságripi um málstofuna (um það bil 400 orð, fyrir utan heimildir)

- Samantekt á heildarþema eða viðfangsefni

- Nafn og starfstitill þess sem leiðir málstofuna

- Ágripi fyrir hvert einstakt erindi (250 orð, án heimilda), þar sem fram koma:

- Markmið

- Rannsóknarspurningar

- Fræðilegur grunnur

- Aðferð

- Fyrirliggjandi / bráðabirgðaniðurstöður

- Nafn, starfstitill og skóli/stofnun og hvers fyrirlesara

Samsett málstofa stendur yfir í 90 mínútur. Fjöldi erinda í samsettri málstofu er 3 – 5.

Öllu efni sem tilheyrir málstofunni (yfirlitságripi + einstaklingságripum) skal safna saman og hlaða upp sem einu skjali þegar erindi er sent inn. Vinsamlegast skrifið ágripið á því tungumáli sem þið hyggist flytja erindið á.

Skráning og ráðstefnugjöld

Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnuna 1. nóvember 2026.

Skráning Dates
Snemmskráning 1. nóvember – 31. desember 2026
Almenn skráning 1. janúar – 1. mars 2027
Ráðstefnugjald Almennt gjald Doktorsnemar
Snemmskráning 50.000 kr. 15.000 kr.
Almenn skráning 65.000 kr. 25.000 kr.
Eingöngu laugardagur   15.000 kr.

Viltu fylgjast með?

Skráðu þig á póstlista ráðstefnunnar og fáðu upplýsingar þegar nær dregur.

Við munum nota póstlista til að miðla mikilvægum upplýsingum um ráðstefnuna.

Skrá mig á póstlista

Gagnlegar upplýsingar

  • Ráðstefnan fer fram í Háskólanum á Akureyri 8. – 10. apríl 2027
  • Tungumál ráðstefnunnar eru skandinavísk mál
  • Frestur til að senda inn ágrip er 30. október 2026
  • Icelandair flýgur til Akureyrar (frá Reykjavík), sjá flugáætlun á vef Icelandair
  • Hér má finna upplýsingar um helstu gististaði á Akureyri og í nágrenni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veita Birna Svanbjörnsdóttir, birnas@unak.is, og Íris Hrönn Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá MSHA, 460-8592, iris@unak.is