Öll velkomin á opna málstofu í Auðlindadeild þar sem Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, stúdent í rannsóknartengdu meistaranámi í auðlindafræðum mun kynna niðurstöður lokaverkefnis síns. Verkefnið heitir: Sértæk mótefnasvörun gegn Aeromonas salmonicida achromogens í bleikju (Actic charr) eftir bólusetningu með nýju tilraunabóluefni
Málstofan fer fram í stofu M101 húsnæði HA.
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir er að ljúka MS prófi í auðlindafræðum frá Auðlindadeild Háskólans á Akureyri vorið 2024 með áherslu á líftækni. Hún vann verkefnið undir handleiðslu Rannveigar Björnsdóttur dósents við Auðlindadeild HA.
Á málstofunni verður fjallað um niðurstöður lokaverkefnis Sigþóru sem var hluti af stærra samstarfsverkefni sem tengdist þróun og prófun á nýju bóluefni. Í verkefninu var rannsökuð mótefnasvörun bleikju gegn A. salmonicida undirtegund achromogenes í kjölfar bólusetningar með nýju tilraunabóluefni og til samanburðar var jafn stór hópur fiska bólusettur með almennu bóluefni sem hefur verið notað í bleikjueldi á Íslandi. Þá var einnig rannsökuð fylgni á milli sértækrar mótefnasvörunar og vaxtar og dauða fiska í framleiðslueiningunum.
Nánar um verkefnið
Kýlaveikibróðir er sjúkdómur af völdum bakteríunnar Aeromonas salmonicida undirtegund achromogenes og leggst á ýmsar fisktegundir, þar á meðal bleikju. Kýlaveikibróðir getur leitt til mikils fjárhagslegs tjóns hjá framleiðendum og sértæk bóluefni eru ekki fáanleg á almennum markaði. Bóluefnið sem er almennt notað gegn kýlaveikibróður í framleiðslu bleikju á Íslandi er þróað fyrir Atlantshafslax (Salmo salar) og gegn annarri undirtegund bakteríunnar, þ.e. undirtegundinni salmonicida, sem veldur hinni eiginlegu kýlaveiki. Það bóluefni hefur þó gefið ófullnægjandi virkni í bleikju og hafa áhrif þess farið minnkandi á liðnum árum. Til að bregðast við þessu var, í samvinnu við spænska bóluefnaframleiðandann HIPRA, þróað nýtt eingilt tilraunabóluefni gegn kýlaveikibróður í bleikju og eru áhrif þess rannsökuð í verkefninu.
Öll velkomin!