21. mars 2024 kl. 15:00-16:00
Opin málstofa í Viðskiptadeild

Að þessu sinni mun Grétar Þór Eyþórsson, prófessor og deildarforseti Viðskiptadeildar flytja erindið: 

Siglufjörður og Ólafsfjörður eftir sameiningu og göng. Úr norrænu rannsóknaverkefni um sjálfbærni sjávarbyggða.

Í erindinu mun Grétar segja frá Íslenskum hluta af norrænu verkefni sem styrkt er af Norrænu Ráðherranefndinni og unnið í samvinnu við háskóla í Noregi, Danmörku, Færeyjum og Grænlandi. Samstarfsaðili Grétars innanlands er Byggðastofnun.

Málstofan fer fram í stofu M101 og verður einnig streymt frá henni hér.

Verkefnið hefur yfirskriftina: NORVALUE - Value Chains and Resilient Coastal Communities in the Nordic Atlantic

Tilgangur íslenska verkefnisins hefur verið að skoða hvernig bæjunum tveimur sem nú mynda Fjallabyggð hefur gengið að aðlagast þeim miklu breytingum sem hafa orðið þar síðustu 20-25 ár. Í því tilliti er litið til sameiningarinnar, tilkomu Héðinsfjarðarganga, stofnun Menntaskóla og ekki síst mikillar fjárfestingar og uppbyggingar í ferðaþjónustu og í líftækni.

Öll velkomin!