25. september 2026 kl. 10:00-16:00
Ráðstefna Viðskiptadeildar um svæða-, byggða- og sveitastjórnarmál

Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri stendur fyrir ráðstefnunni Svæði, byggðir og samfélög á Íslandi föstudaginn 25. september.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að fjölbreyttum viðfangsefnum sem tengjast byggða- og samfélagsþróun á Íslandi. Fjallað verður meðal annars um vinnumarkaði og fjarvinnu í dreifbýli, stöðu og þróun byggðar, samgöngur og atvinnulíf, ferðaþjónustu, nýsköpun, búsetu og búferlaflutninga fólks.

Með ráðstefnunni er skapaður vettvangur til að miðla rannsóknum og þekkingu á þeim tækifærum og áskorunum sem íslenskar byggðir og samfélög standa frammi fyrir. Erindin varpa ljósi á þróunina frá ólíkum sjónarhornum og þá þætti sem geta haft áhrif á framtíð byggðar og búsetu um allt land.

  • Ráðstefnan fer fram í Háskólanum á Akureyri, í stofu M101 og hefst kl. 10.00
  • Þátttakendur eru hvattir til að skrá þátttöku sína

Skráðu þig hér

Dagskrá

10.00 | Setning ráðstefnu

10.15-12.00 | VINNUMARKAÐIR OG FJARVINNA Í DREIFBÝLI

Fjarvinna og sveigjanleiki: tækifæri fyrir minni byggðir?
Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við Viðskiptadeild HA

Áhrif hnattvæðingar á vinnumarkaði á dreifbýlum svæðum. Dæmi frá Íslandi og Svíþjóð
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild HA

Óstaðbundin störf og óskabúseta: Hversu miklu fleiri telja sig geta unnið meira óstaðbundið? Hvar myndu þeir vilja búa?
Vífill Karlsson, prófessor við Viðskiptadeild HA

Stafræn þróun og fjarvinna á dreifbýlum svæðum á Norðurlöndunum
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild HA


12.05 | Léttur hádegisverður

12.35-14.25 | BYGGÐ, SAMGÖNGUR OG ATVINNULÍF

Staða byggðar á Íslandi í dag
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild HA

Jarðgöng á Austurlandi
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild HA og Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA

Rannsókn á arðsemi íslensks sjávarútvegs 1990-2022
Stefán B. Gunnlaugsson, prófessor við Viðskiptadeild HA

Ferðaþjónusta í íslenskum byggðum: Tækifæri og langtímavirði
Hafdís B. Hjálmarsdóttir, lektor við Viðskiptadeild HA

14.25-16.00 | BYGGÐIR, BÚSETA OG ÞJÓNUSTA

Úrgangsmál í sveitarfélögum
Guðmundur K. Óskarsson, dósent við Viðskiptadeild HA

Frá jaðri til forskots: Nýsköpun, frumkvæði og sjálfbærni sem drifkraftar byggðaþróunar
Kjartan Sigurðsson, dósent við Viðskiptadeild HA

Forysta: Ímynd bæja og byggða
Sigurður Ragnarsson, lektor og deildarforseti Viðskiptadeildar HA

Búseta, búferlaflutningar og ungt fólk: Hvaða þættir hafa áhrif á búferlaflutninga ungs fólks?
Vífill Karlsson, prófessor við Viðskiptadeild HA

16.00 | Ráðstefnuslit og hressing

 

Öll velkomin!